Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar 13. maí 2026 11:00 Á laugardag göngum við að kjörborðinu og veljum fólkið sem við treystum best fyrir okkar nánasta umhverfi. Kjarni stjórnmálanna er þjónusta við íbúa og þar gegna sveitarfélögin lykilhlutverki. Þess vegna er mikilvægt að til sveitarstjórna veljist fólk sem sýnir ráðdeild í rekstri. Ábyrg meðferð almannafjár er forsenda þess að við getum veitt þá þjónustu sem samfélagið krefst og við þurfum að leita allra leiða til þess að bæta hana. Sem fjármála- og efnahagsráðherra hef ég lagt ríka áherslu á, ásamt öðrum ráðherrum, að styrkja umgjörð og fjárhagslega getu sveitarstjórnarstigsins til þess að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Fyrsta skrefið var að leysa úr hnökrum og ágreiningi sem hefur lengi einkennt samskipti ríkis og sveitarfélaga. Við gengum í það verk og leiddum til lykta nokkur áralöng deilumál, bæði um kostnaðarskiptingu í stórum málaflokkum og uppbyggingu á lóðum í eigu ríkisins sem hafa staðið ýmist vannýttar eða auðar. Afraksturinn er meðal annars sá að uppbygging hjúkrunarheimila er komin í betri farveg og að ríkið hefur tekið við ábyrgðinni á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Það síðarnefnda hefur þyngt verulega rekstur sveitarfélaga, sérstaklega þeirra smærri. Fleiri mál má telja, svo sem náið samstarf um stafræna þjónustu, samvinnu í kjaramálum og sameiginlegt markmið okkar um að stöðva hallarekstur hins opinbera. Ef fer sem horfir mun ríkið ná því markmiði á næsta ári og sveitarfélögin ári síðar. Ríkisstjórnin hefur einnig horfst í augu við húsnæðisvandann og unnið markvisst að lausn hans, t.d. með því að gera samninga við sveitarfélög um íbúðauppbyggingu á lóðum í eigu ríkisins. Þar má nefna þróun Vífilsstaðareitar í Garðabæ, samninga um uppbyggingu innviða og íbúðarhúsnæðis í Reykjanesbæ og uppbygginu 1.200-1.400 íbúða á sex tilgreindum svæðum í Reykjavík. Viðræður standa yfir við fleiri sveitarfélög, til dæmis Skagafjörð um málefni þéttbýlisins á Hólum í Hjaltadal en þær eru nú á lokastigi. Hagur landsmanna liggur í því að ríkið og sveitarfélögin gangi í takt og vinni náið saman. Ég geng að sjálfsögðu ekki óbundinn til kosninga sjálfur og óska félögum mínum í Viðreisn góðs gengis. Við deilum þeirri hugsjón að ábyrgur rekstur sé undirstaða þjónustu og að árangur snúist um hagsmuni almennings en ekki pólitískan frama. Á þessum grunni mun ég leitast við að tryggja áfram gott samstarf við nýkjörið sveitarstjórnarfólk um allt land, úr öllum flokkum. Við höfum sameiginlegt verk að vinna fyrir fólkið í landinu. Höfundur er varaformaður Viðreisnar og fjármála- og efnahagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Daði Már Kristófersson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar