Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. maí 2026 14:50 Haukur Þrastarson skoraði fjögur mörk gegn Egyptalandi og stýrði sóknarleik Íslands vel. Getty/Sanjin Strukic Íslenska karlalandsliðið í handbolta sigraði Egyptaland, 30-31, í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í Kairó í dag. Íslendingar voru þremur mörkum undir, 30-27, þegar átta mínútur voru til leiksloka en skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins og tryggðu sér sigurinn. Ahmed Hesham kom Egyptalandi í 30-27 á 52. mínútu, með sextánda marki Afríkumeistaranna í seinni hálfleik. Snorri Steinn Guðjónsson tók þá leikhlé og eftir það vænkaðist hagur Íslands. Vörnin, sem var hriplek framan af seinni hálfleik, þéttist og Viktor Gísli Hallgrímsson hrökk aftur í gang í markinu. Ísland jafnaði með tveimur mörkum frá Teiti Erni Einarssyni og einu frá Þorsteini Leó Gunnarssyni, 30-30. Í kjölfarið varði Viktor vítakast frá Yahia Omar. Essam Eltayar varði sömuleiðis víti frá Orra Frey Þorkelssyni en hann bætti upp fyrir það þegar hann kom Íslandi yfir, 30-31, úr hraðaupphlaupi. Omar klikkaði svo á skoti og Ísland fékk boltann. Snorri tók leikhlé en leiktöf var dæmd á íslenska liðið þegar níu sekúndur voru eftir. Egyptar fengu tækifæri til að jafna og reyndu sirkusmark. Hesham kastaði boltanum inn í vítateiginn á Omar sem greip hann og skaut í gólfið og slána. Lokatölur 30-31, Íslandi í vil. Afar sterkur sigur hjá íslenska liðinu sem var án fjölda lykilmanna í dag. Viktor og Þorsteinn fóru vel af stað Íslenska liðið byrjaði leikinn af krafti, þó enginn af meiri krafti en Þorsteinn Leó. Hann skoraði tvö fyrstu mörk Íslendinga og fjögur af fyrstu átta mörkum þeirra. Ísland náði mest þriggja marka forskoti en miklu munaði um frábæra frammistöðu Viktors Gísla. Hann varði ellefu skot í fyrri hálfleik, eða 44 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Íslenska vörnin var sterk framan af í fyrri hálfleik en henni gekk illa að eiga við leikstjórnandann Seif El-Deraa eftir að hann kom inn á. Egyptar jöfnuðu í 11-11 en Íslendingar skoruðu þrjú af næstu fjórum mörkum leiksins, 12-14. Egyptaland skoraði hins vegar tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og staðan var því jöfn, 14-14, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Hriplek vörn Egyptaland skoraði fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og gaf tóninn en nánast hver einasta sókn þeirra fyrstu 22 mínútur seinni hálfleiks endaði með marki. Íslenska vörnin fékk ekkert við ráðið og vörðu skotunum fækkaði einnig mikið. Línumaðurinn Ahmed Adel reyndist íslensku varnarmönnunum sérstaklega erfiður en hann skoraði sex mörk úr jafn mörgum skotum og fiskaði tvö víti. Jón Bjarni Ólafsson minnkaði muninn í 18-17 með sínu fyrsta landsliðsmarki en egypska liðið svaraði með þremur mörkum í röð og náði fjögurra marka forskoti, 21-17. Sem betur fer var sóknin í fínu lagi og Haukur Þrastarson og Kristján Örn Kristjánsson skoruðu mikið um miðbik seinni hálfleiks. Fyrir vikið stungu Egyptar ekki af. Góður endasprettur Útlitið var þó ekki bjart þegar átta mínútur lifðu leiks en þá þéttu Íslendingar raðirnar í vörninni og sjö á sex útfærsla í sókninni gafst vel. Á endanum lönduðu Íslendingar sterkum sigri, 30-31, í leik sem var að mestu góður af þeirra hálfu, gegn öflugu egypsku liði sem var með allar sínar helstu kanónur. Kristján Örn var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk og Þorsteinn Leó og Teitur skoruðu fimm mörk hvor. Örvhentu skyttur Íslands skoruðu því samtals ellefu mörk í leiknum. Haukur og Orri skoruðu fjögur mörk hvor og sá fyrrnefndi átti auk þess fjölda stoðsendinga. Jón Bjarni skoraði svo tvö mörk í sínum fyrsta landsleik. Maður leiksins var samt Viktor sem varði 22 skot, þar af þrjú víti, eða 43 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Frábær frammistaða hjá Börsungnum í hans fyrsta leik sem fyrirliði landsliðsins. Seinni leikur Egyptalands og Íslands fer fram á föstudaginn. Landslið karla í handbolta