Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar 14. maí 2026 08:11 Nýr meirihluti Samfylkingar, Pírata, Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs , Sósíalista og Flokks fólksins tók við stjórn Reykjavíkur eftir pólitíska yfirplottun oddvita Framsóknarflokksins snemma árs 2025. Um var að ræða fyrsta fimm flokka meirihlutann í sögu borgarinnar, sem tók við krefjandi aðstæðum í borgarsjóði, húsnæðismarkaði, leikskólamálum og innviðauppbyggingu. Þrátt fyrir efasemdir um stöðugleika samstarfsins hefur meirihlutinn á 15 mánuðum komið fjölda stórra mála áfram í framkvæmd og afgreiðslu. Fleiri tillögur hafa verið lagðar fram og afgreiddar í borgarstjórn á þessu tímabili en samanlagt á þremur árum þar á undan. Frá upphafi var jafnframt lögð áhersla á virka dagskrá og stöðuga framvindu mála á hverjum fundi. Fjármál og rekstur Samstarfsflokkarnir hafa stýrt borginni við krefjandi aðstæður í efnahagsmálum, hátt vaxtastig og verðbólgu. Viðbrögð okkar voru að verja grunnþjónustuna fremur en að fara í harkalegan niðurskurð, á sama tíma og áfram var fjárfest í innviðum og verkefnum forgangsraðað með skýrari hætti. Áhersla hefur verið lögð á aukið gagnsæi og styrkari rekstrarstjórn, meðal annars með auknu eftirliti með aksturs- og ferðakostnaði, ráðgjafakaupum, útboðum, innkaupum og ráðningum. Innkaupastefna hefur verið endurnýjuð og verklag gert skýrara, með það að markmiði að styrkja traust og yfirsýn í rekstri borgarinnar. Húsnæðismál Húsnæðisuppbygging var sett strax í forgang. Unnið hefur verið að auknu framboði íbúða, fleiri hagkvæmum lausnum og hraðari skipulagsferlum, með aukinni samvinnu við verkalýðshreyfinguna og óhagnaðardrifin húsnæðisfélög. Meðal annars hefur verið unnið að nýjum samstarfssamningum og viljayfirlýsingum við aðila á borð við Bjarg og fleiri félög. Félagslegt húsnæði hefur verið skilgreint sem hluti af grunninnviðum borgarinnar, með áherslu á fjölgun íbúða, dreifingu um borgina, félagslega blöndun og styttri biðlista. Markmiðið hefur verið skýrt: Reykjavík eigi að vera borg þar sem fólk með venjulegar tekjur getur búið. Börn, leikskólar og fjölskyldur Börn og barnafjölskyldur hafa verið sett í forgang. Í leikskólamálum hefur verið unnið að því að styrkja bæði þjónustu og starfsaðstæður, meðal annars með Reykjavíkurleiðinni, auknum fjárframlögum, hærri launum, betri mönnun og auknum stuðningi við stjórnendur. Fáliðun hefur minnkað og ófyrirséðum lokunum fækkað, á sama tíma og faglegur stuðningur hefur verið styrktur með ráðgjöf og mannauðsúrræðum. Samhliða hefur verið unnið að aukinni þjónustu við börn með fjölþættan vanda, styrkingu íslenskukennslu og aukinni sálfræði- og talmeinaþjónustu. Á breiðari vettvangi hefur verið ráðist í aðgerðir til að létta á kostnaði fjölskyldna, þar á meðal með 36 gjaldfrjálsum leikskólatímum á viku, styrkingu frístundastarfs, gjaldfrjálsum strætó fyrir grunnskólabörn og aukinni aðkomu að íþrótta- og menningarstarfi. Sérstök úrræði hafa verið sett á laggirnar til að tryggja þátttöku barna tekjulágra foreldra í frístundum. Samgöngur og borgarskipulag Haldið hefur verið áfram með stór innviðaverkefni, þar á meðal Borgarlínu, uppbyggingu hjóla- og göngustíga og þéttingu byggðar sem fylgir nú skýrum viðmiðum borgarhönnunarstefnunnar sem samþykkt var í vetur. Samhliða hefur verið unnið að umbreytingu lykilsvæða og þróun nýrra hverfa. Stefna borgarinnar hefur verið skýr um að draga til lengri tíma úr bílaumferð með fjölbreyttari ferðamátum og betri nýtingu innviða. Þétting byggðar hefur verið áfram meginstefna, með áherslu á hagkvæmni, styttri ferðatíma, minni innviðakostnað og betri stuðning við almenningssamgöngur. Loftslagsmál og umhverfi Loftslagsmál hafa áfram verið í forgangi, með áherslu á orkuskipti, vistvænar samgöngur, græn innkaup og kolefnisminni borgarrekstur. Samhliða hefur verið unnið að vernd grænna svæða, bættu aðgengi að útivist og styrkingu göngu- og hjólatenginga. Félagsleg réttindi og velferð Meirihlutinn hefur lagt áherslu á að Reykjavík sé ekki aðeins skilvirk borg heldur réttlátt samfélag. Aukinn stuðningur hefur verið veittur til tekjulægri hópa, þjónusta við fatlað fólk og eldri borgara styrkt og félagsþjónusta efld. Húsnæðisöryggi hefur verið skilgreint sem lykilþáttur velferðar og lögð áhersla á að börn alist ekki upp við óöryggi, með skýru sjónarhorni um samfélagslega ábyrgð sveitarfélagsins. Pólitískur árangur Fimm flokka samstarfið hefur staðið af sér miklar efasemdir um stöðugleika og sýnt meiri festu en margir höfðu spáð. Meirihlutinn hefur samþykkt metnaðarfullar fjárhagsáætlanir, haldið áfram stórum framkvæmdum og komið sameiginlegum áherslum sínum í framkvæmd. Samhliða hefur orðið skýr áherslubreyting í borgarpólitíkinni, með aukinni áherslu á félagsleg sjónarmið, húsnæðisöryggi, barnafjölskyldur, almenningssamgöngur, jöfnuð og samfélagslega ábyrgð. Samstaða 15 mánuðir samstarfsflokkanna í Reykjavík hafa einkennst af ábyrgð, skýrri verkefnastjórn og stöðugri framvindu í stórum málaflokkum. Meirihlutinn hefur verið samstíga við að setja húsnæðismál og börn í forgang, verja grunnþjónustuna, halda áfram innviðauppbyggingu, styrkja félagslega nálgun í borgarmálum og aukið gagnsæi í rekstri. Í heild hefur verið unnið að því að móta borg þar sem við öll getum byggt okkur líf, alið upp börn og fundið öryggi, þrátt fyrir blikur á lofti. Þetta var stutt og krefjandi en þegar upp er staðið erum við stoltar af verkum okkar. Við vitum að sú vinna sem lögð var í undanfarna 15 mánuði á eftir að skila sér í betri borg. Höfundur er borgarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Heiða Björg Hilmisdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar