Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar 13. maí 2026 20:00 Samfylkingin býður Reykvíkingum átta nýja leikskóla ef hún fær að vera áfram við völdin. Þetta er sami flokkur og hefur verið í fimm ár að endurbyggja leikskólann Brákarborg – og kostnaðurinn kominn í 3,4 milljarða. Hvers vegna ættu borgarbúar að treysta framboði sem getur ekki gert betur og hefur samt setið við stjórnvölinn í tæpa tvo áratugi? Traust fæst ekki með loforðum eða slagorðum. Traust verður til með verkum, efndum og ábyrgð. Þegar litið er yfir „afrekalistann“ blasir við mynstur sem ætti að vekja alvarlegar spurningar um Samfylkinguna hjá öllum íbúum Reykjavíkur. Braggamálið varð táknmynd stjórnleysis og veikrar fjármálastjórnunar. Milljarðamistök hjá Sorpu. Mygla í skólum vegna viðhaldsleysis. Leikskólabiðlistar sem bara lengjast. Síhækkandi gjaldskrár. Lóðabrask sem keyrir upp húsnæðisverð. Vaxandi skuldir. Forljót þétting byggðar. Þunglamaleg stjórnsýsla. Borgarlína upp á hundruð milljarða með óljósri fjármögnun. Græna gímaldið, og margt, margt fleira. Þetta er mynstur og ekki fallegt. En ábyrgðin liggur ekki bara hjá Samfylkingunni. Hún liggur hjá öllum þeim flokkum sem hafa árum saman haldið þessari vinstri stjórn við völd, varið hana, samþykkt fjárhagsáætlanir, framúrkeyrslurnar, gjaldskrárnar, forgangsröðunina, skuldasöfnunina og í sumum tilvikum leynt upplýsingum eins og nú hefur komið fram í tengslum við Græna Gímaldið. Viðreisn getur ekki þvegið hendur sínar núna. Eftir átta ár í meirihluta með Samfylkingunni kemur flokkurinn nú fram í kosningabaráttu og talar eins og hann hafi verið í stjórnarandstöðu allan tímann. Nú á allt í einu að „snúa hlutunum við“, „hugsa reksturinn upp á nýtt“ og „setja íbúana í fyrsta sæti“. Hvar var þessi sýn síðustu árin, þegar Viðreisn stýrði fundum borgarráðs og borgarstjórnar? Ef hlutirnir voru ekki í lagi, hvers vegna var þá haldið áfram að samþykkja sömu fjárahgsáætlunin, sömu framkvæmdirnar, sömu skipulagsmistökin, sömu gjaldskrárnar og sömu forgangsröðunina? Heldur Viðreisn virkilega að með því að snúa á hvolf mynd af efsta manni á listanum þá bara leki ábyrgðin niður? Framsókn ber líka sína ábyrgð. Þegar tækifæri gafst til breytinga valdi Framsókn að framlengja líf meirihluta sem sífellt fleiri borgarbúar höfðu misst trú á. Með þeirri ákvörðun varð flokkurinn hluti af ábyrgðinni, ekki lausnin. Vinstri græn bera ábyrgð. Píratar bera ábyrgð og Flokkur fólksins ber ábyrgð. Allir þessir flokkar hafa á mismunandi tímum tryggt Samfylkingunni meirihluta, pólitískt skjól og áframhaldandi völd. Nú sjáum við ný nöfn, ný slagorð og ný merki. Nú heitir það jafnvel Vinstrið. En borgarbúar ættu að muna eitt: Nýtt nafn breytir ekki gömlum ákvörðunum.Nýtt slagorð breytir ekki gömlu ráðleysi.Ný loforð breiða ekki yfir gamla fúskið.Ný framboð með sama forystufólki eru oftast bara nýjar umbúðir utan um sömu pólitíkina. Kjósendur eiga ekki bara að hlusta á það sem þessir flokkar lofa núna, rétt fyrir kosningar. Þeir eiga að horfa á það sem þeir gerðu þegar þeir höfðu völdin. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar