Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir og Gauti Kristmannsson skrifa 14. maí 2026 09:32 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kom í viðtal á Sýn á dögunum þar sem hann taldi tafir á umhverfismati Sundabrautar vera „fáheyrðar“ og hyggst hann fela lögmannsstofu úti í bæ að rannsaka hvað valdi þessum töfum hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun sem er ein af stofnunum hans eigin ráðuneytis! Hann var ekki spurður að því hvernig í ósköpunum á því stæði að hann hygðist fela þriðja aðila að rannsaka opinbera stofnun undir hans eigin ráðuneyti. Er vitað til þess að nokkur ráðherra hafi gert annað eins hingað til? Ráðherra var hins vegar spurður að því hvort hvort Sundabraut yrði í brú eða göngum og hver tæki þá ákvörðun. Hann taldi hana vera sína, en viðurkenndi þó að sveitarfélagið færi með skipulagsvaldið. Hann gaf síðan nánast þá yfirlýsingu að farið yrði í brú, þrátt fyrir að hafa ekki séð umhverfismatið enn. Þetta er fáheyrð stjórnsýsla og meira en afleit og ætti að taka fyrir á opinberum vettvangi, en enginn fjölmiðill hefur tekið upp þráðinn, þrátt fyrir að Sundabraut sé eitt af stærstu samgöngumálum borgarinnar og verkefni sem snertir hagsmuni og lífsgæði tuga þúsunda íbúa í Laugardal og Grafarvogi. Þingmenn Reykvíkinga þegja þunnu hljóði að vanda enda virðist flestum þeirra koma sitt kjördæmi lítið við. Sama má segja um ríkisstjórnina. Frambjóðendur til borgarstjórnar, sem nýlega lofuðu flestir á íbúafundi í Laugardal að velja göng fram yfir brú, hafa heldur ekki rekið upp bofs vegna þessa, sem vekur furðu þar sem innviðaráðherra segist vera í raun ráða þessu þrátt fyrir skipulagsvald sveitarfélaga. Fróðlegt væri að vita hvaða augum flokkarnir líta á þessi viðhorf innviðaráðherra. Það kemur líka á óvart að eftir langvarandi samráð við íbúa og vandaðar athugasemdir þeirra við matsáætlunina ætli ráðherra að vanvirða vilja íbúanna og hunsa störf sinnar eigin fagstofnunar á sviði skipulagsmála. Íbúasamtök Laugardals og einnig Grafarvogs hafa barist fyrir því að Sundabraut yrði í göngum, a.m.k. undir Kleppsvíkina, en verði hún á brú munu tugþúsundir bíla fara á hverjum degi í gegnum hverfin, Borgarveg og Hallsveg í Grafarvogi og Holtaveg, Langholtsveg og Álfheima í Laugardalnum. Á þeim leiðum eru fjöldi skóla, leikskóla, frístundaheimila og íþróttamannvirkja. Þessi gríðarlega umferð myndi skerða lífsgæði íbúa verulega og spilla umhverfinu mjög. Ráðherra virðist einbeittur í því að ráðast gegn þessum hagsmunum íbúa með því að keyra Sundabrú í gegn, sem er í raun fáheyrt þegar litið er til þeirra miklu hagsmuna fjölda íbúa í Reykjavík sem undir eru. Höfundar eru íbúar í Laugardalshverfi og í stjórn Íbúasamtaka Laugardals. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gauti Kristmannsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sundabraut Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar