Breytum þessu! Jón Guðni Guðmundsson skrifar 14. maí 2026 23:03 Það hafa verið algjör forréttindi að fá tækifæri til að leiða lista Viðreisnar á Akranesi. Við erum að bjóða fram í fyrsta skipti í bænum okkar og erum í grunninn hópur fjölskyldufólks með fjölbreyttan bakgrunn. Við höfum einsett okkur að starfa af heiðarleika, fagmennsku og ábyrgð. Við komum á sviðið með ferska sýn og nýja nálgun. Við bjóðum okkur fram til að bretta upp ermar og taka ákvarðanir fyrir hönd íbúa, með hag íbúa að leiðarljósi. Í kosningabaráttunni hef ég lagt mig fram um að leggja við hlustir. Þegar ég spyr hvers vegna fólk kýs að búa á Akranesi stendur ekki á svörum. Við erum stolt af bænum okkar en við viljum sækja fram. Setja kassann út og lyfta upp Akranesi. Gefum atvinnulífinu sæti við borðið Hér á Akranesi er öflugt atvinnulíf, sterkt skólasamfélag og öflugt velferðarkerfi. Hér er einnig gríðarlega öflugt íþrótta- og tómstundastarf í boði fyrir börnin okkar. En við getum gert miklu betur til að liðka fyrir þeim sem vilja byggja hér upp enn öflugra samfélag. Viðreisn vill beita sér fyrir því að einfalda regluverk og ferla bæjarins. Við viljum lækka álögur og gjöld og búa þannig til hvata til að byggja upp og sækja fram. Við viljum lyfta upp atvinnulífinu á Akranesi og eiga í virku samtali við atvinnurekendur og hagaðila sem þekkja það best hvar veggirnir liggja og hvar megi gera betur. Við viljum stofna atvinnuveganefnd þar sem fólk úr atvinnulífinu á raunverulega rödd við borðið til að halda okkur rækilega við efnið. Ég hef skynjað ákveðna gjá á milli atvinnulífsins og bæjarins í mínum samtölum síðustu vikurnar. Breytum þessu! Fjárfestum í fólkinu okkar Öll mál eru fjölskyldumál. Ég hef í kosningabaráttunni átt dýrmæt samtöl við fagfólkið okkar sem er algjörlega framúrskarandi. Það mætir til vinnu á hverjum degi með það fyrir augum að hlúa að okkar dýrmætustu innviðum: fólkinu okkar. Viðreisn á Akranesi vill tryggja að aukið fjármagn sé sett beint inn í grunnþjónustuna. Við viljum gera allt sem við getum til að styðja við það að fagfólkið geti verið á gólfinu inn í skólunum okkar þannig að börnin okkar séu gripin strax. Akranes er leiðandi sveitarfélag þegar það kemur að því að innleiða farsældarlögin, við eigum að byggja áfram á þeim grunni en gera allt sem við getum til að veita fagfólkinu okkar réttu tækin og tólin. Fjárfesting í fólkinu okkar er sú arðbærasta. Íbúum hefur fjölgað og það kallar á viðbragð af hálfu bæjarins í uppbyggingu mannvirkja. Það snýst ekki um mannvirkin sjálf, heldur um fólkið okkar sem notar þjónustuna sem þar er að finna. Hvort sem er uppbygging skólanna okkar, bætt aðstaða til íþróttaiðkunar eða önnur lýðheilsumannvirki. Við viljum setja fram raunhæfa og tímasetta uppbygginaráætlun bæjarins svo íbúar geti fylgst vel með þróun mála. Það er ekki hægt að gera allt í einu. En við verðum að þora að taka ákvarðanir og standa með þeim. Við treystum okkur til þess. Viðhald er rekstur Viðhald sem ekki er sinnt endar einfaldlega sem skuld með dráttarvöxtum. Við viljum skýra viðhaldsáætlun fyrir allar byggingar bæjarins og raunhæfa áætlun um viðhald gatna. Skuld fortíðarinnar liggur í slæmu undirlagi gatna sem lagast ekki nema með varanlegum, og kostnaðarsömum lausnum. Hér þarf einfaldlega að byrja og greiða niður innviðaskuldina. Það er löngu tímabært. Við sjáum það því miður víða í bænum okkar að innviðir hafa grotnað niður. Rekstur bæjarins er flókið viðfangsefni. Skuldahlutfallið er 105% og álögur á íbúa og fyrirtæki hafa því miður hækkað á kjörtímabilinu. Við viljum aðra nálgun á verkefnið. Viðreisn á Akranesi mun fara óhrædd í þá vegferð að velta við öllum steinum og tryggja gagnsæi í ákvarðanatöku bæjarstjórnar. Virkt samráð við íbúa og opið kerfi er það sem við trúum á að skili bættri ákvarðanatöku. Fyrir fólkið okkar. Loforð og efndir Ég er nýliði í pólitík og er að læra mjög hratt. Ég er nokkuð venjulegur verkfræðingur, þriggja barna faðir og maður sem ákvað að flytja með fjölskylduna á Skagann vegna þess að við sáum hvers konar lífsgæði fylgja í kaupbæti. Ég vinn við það á hverjum degi sem burðarþolshönnuður að taka stórar og erfiðar ákvarðanir. Ef það er eitthvað sem er eitur í mínum beinum þá er það ákvörðunarfælni. Nú langar mig að nýta þá hæfni og reynslu sem ég hef til að taka stórar og mikilvægar ákvarðanir í þágu bæjarins sem mér þykir svo vænt um. Við eigum öflugt samfélag en ég trúi því að það geti orðið enn öflugra. Setjum fram skýr markmið, með gagnsæjum hætti og vinnum saman að því að gera gott samfélag enn betra.Við biðjum um ykkar stuðning til að tryggja ferska rödd og nýja nálgun í bæjarmálin á Akranesi. Breytum þessu saman og setjum X við C! Höfundur er oddviti Viðreisnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Akranes Viðreisn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar