Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 15. maí 2026 09:10 Á Íslandi hefur húsnæðismarkaðurinn þróast með þeim hætti að sífellt fleiri upplifa óöryggi, háa leigu og skort á raunverulegum réttindum. Leigjendasamtökin hafa bent á þá þróun að húsnæði sé orðið að fjárfestingarvöru fremur en heimili fólks og tekur Flokkur fólksins heilshugar undir það sjónarmið. Það er erfitt að tala um réttlátt samfélag þegar ungt fólk kemst ekki inn á markaðinn, einstæðir foreldrar verja meirihluta tekna sinna í leigu og eldri borgarar búa við stöðugan ótta um að missa heimili sitt vegna hækkana eða uppsagna. Leigjendur á Íslandi búa við veikara öryggi en víða annars staðar á Norðurlöndum. Skammtímasamningar, ófyrirsjáanlegar leiguhækkanir og skortur á langtímavernd hafa orðið að daglegum veruleika þúsunda fjölskyldna. Flokkur fólksins hefur lagt áherslu á að húsnæði eigi að vera félagslegt réttlætismál en ekki eingöngu markaðsvara. Ríki og sveitarfélög eiga að koma inn með sterkari hætti á húsnæðismarkaðinn með auknu framboði af hagkvæmu húsnæði, bæði til leigu og kaups. Mikilvægasta lausnin er að fjölga verulega óhagnaðardrifnum leiguíbúðum þar sem markmiðið er stöðugleiki fremur en hámarksgróði. Íslenska kerfið hefur dregist aftur úr Norðurlöndunum, þar sem finna má sterk félagsleg húsnæðiskerfi sem hafa tryggt fólki meira öryggi. Mikilvægt er að það séu gerðir langtímaleigusamningar með hóflegum og fyrirsjáanleika í leiguverði og aukinni vernd gegn óréttmætum uppsögnum. Flokkur fólksins ætlar að lækka kostnað fólks við að komast inn á húsnæðismarkaðinn, meðal annars með því að styðja við fyrstu kaupendur og ætlum við að takmarka áhrif stórra fjárfestingafélaga sem kaupa upp íbúðir í hagnaðarskyni og ýta þannig undir verðhækkanir og leigukostnað, eins og Alma leigufélag gerði á Heklureitnum. Við ætlum að auka gagnsæi á leigumarkaði með því að kalla eftir skýrari reglum og virkara eftirliti með brotum á réttindum leigjenda. Of margir leigjendur hafa upplifað að þeir standi varnarlausir gagnvart kerfi sem hallar á þá. Húsnæðisöryggi hefur bein áhrif á heilsu, menntun barna og félagslega stöðu fólks. Samfélag sem samþykkir að stór hluti almennings búi við stöðugan ótta um heimili sitt er samfélag sem er að grafa undan eigin velferð til framtíðar og því munum við breyta. Við þurfum nýja sýn þar sem húsnæði er fyrst og fremst skilgreint sem grunnþjónusta og mannréttindi. Lausnirnar liggja ekki í því að bíða eftir að markaðurinn „leiðrétti sig sjálfur“, heldur í ábyrgri stefnu stjórnvalda, auknu félagslegu húsnæði og sterkari réttindum leigjenda. Það er bæði sanngjarnt og samfélagslega skynsamlegt því húsnæði á ekki að vera forréttindi fárra. Það á að vera öruggur grunnur fyrir alla. Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar