Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar 15. maí 2026 12:13 Ég er frambjóðandi í þessum kosningum og hef setið endalaust af pallborðum, fundum og öðrum viðburðurm. Ég hef sjálfur svarað spurningum um bílastæði, þéttingu byggðar og húsnæðismál aftur og aftur og aftur. Og ég verð að segja það hreint út. Það hefur verið rætt meira um bílastæði í þessari kosningabaráttu en nokkrum manni er hollt að ræða bílastæði á heilli mannsævi. Þessi mál skipta alveg máli. Hvar fólk býr, hvernig það kemst leiðar sinnar og hvort ungt fólk getur yfir höfuð flutt að heiman skiptir öllu máli fyrir framtíð borgarinnar. En þegar heil kosningabarátta gengur næstum eingöngu út á þessa þrjá ása, þá hljótum við að spyrja okkur hvað vantar. Það vantar börnin. Það vantar börnin sem barnaverndarkerfið nær ekki að grípa nógu snemma. Það vantar krakkana með fjölþættan geð- og fíknivanda sem fá hvergi viðeigandi úrræði og enda í kerfi sem var aldrei hannað fyrir þau. Það vantar fjölskyldur sem bíða mánuðum og árum saman eftir greiningum og þjónustu. Það vantar málefni fólks með fötlun. Það vantar umræðu um forvarnir í skólum, um sálfræðiþjónustu sem ætti að vera sjálfsögð, og um það hvernig við byggjum upp samfélag þar sem börn fá að dafna en ekki bara að lifa af. Það vantar líka jaðarsettu hópana. Fólkið með fíknivanda sem er meðhöndlað sem vandamál frekar en manneskjur. Heimilislausa fólkið sem sefur á götunum í borg sem segist vera ein sú ríkasta í Evrópu. Fólkið sem býr við ofbeldi, fátækt og útilokun á meðan við þrætum um hvort taka megi tíu bílastæði í burtu af Suðurlandsbraut. Ég hef ítrekað reynt að beina umræðunni að þessum málum á pallborðum, í viðtölum og í samtölum við aðra frambjóðendur. Ég hef sett barnaverndina inn í svör við spurningum um allt aðra hluti. Ég hef nefnt málefni heimilislausra þegar spurt er um skipulagsmál. Ég hef talað um börnin með fjölþættan vanda þegar umræðan átti að snúast um eitthvað allt annað. Það hefur ekki borið árangur. Það vilja öll tala um bílastæði. Það nennir engin að tala um börnin. Mér finnst þessi forgangsröðun röng. Bílastæðin verða á sínum stað hvort sem við ræðum þau eða ekki. Börnin sem detta út úr kerfinu fá hins vegar ekki nýtt tækifæri ef við látum hjá líða að ræða þeirra mál. Höfundur skipar 4. sæti á lista Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Unnar Þór Sæmundsson Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Ég er frambjóðandi í þessum kosningum og hef setið endalaust af pallborðum, fundum og öðrum viðburðurm. Ég hef sjálfur svarað spurningum um bílastæði, þéttingu byggðar og húsnæðismál aftur og aftur og aftur. Og ég verð að segja það hreint út. Það hefur verið rætt meira um bílastæði í þessari kosningabaráttu en nokkrum manni er hollt að ræða bílastæði á heilli mannsævi. Þessi mál skipta alveg máli. Hvar fólk býr, hvernig það kemst leiðar sinnar og hvort ungt fólk getur yfir höfuð flutt að heiman skiptir öllu máli fyrir framtíð borgarinnar. En þegar heil kosningabarátta gengur næstum eingöngu út á þessa þrjá ása, þá hljótum við að spyrja okkur hvað vantar. Það vantar börnin. Það vantar börnin sem barnaverndarkerfið nær ekki að grípa nógu snemma. Það vantar krakkana með fjölþættan geð- og fíknivanda sem fá hvergi viðeigandi úrræði og enda í kerfi sem var aldrei hannað fyrir þau. Það vantar fjölskyldur sem bíða mánuðum og árum saman eftir greiningum og þjónustu. Það vantar málefni fólks með fötlun. Það vantar umræðu um forvarnir í skólum, um sálfræðiþjónustu sem ætti að vera sjálfsögð, og um það hvernig við byggjum upp samfélag þar sem börn fá að dafna en ekki bara að lifa af. Það vantar líka jaðarsettu hópana. Fólkið með fíknivanda sem er meðhöndlað sem vandamál frekar en manneskjur. Heimilislausa fólkið sem sefur á götunum í borg sem segist vera ein sú ríkasta í Evrópu. Fólkið sem býr við ofbeldi, fátækt og útilokun á meðan við þrætum um hvort taka megi tíu bílastæði í burtu af Suðurlandsbraut. Ég hef ítrekað reynt að beina umræðunni að þessum málum á pallborðum, í viðtölum og í samtölum við aðra frambjóðendur. Ég hef sett barnaverndina inn í svör við spurningum um allt aðra hluti. Ég hef nefnt málefni heimilislausra þegar spurt er um skipulagsmál. Ég hef talað um börnin með fjölþættan vanda þegar umræðan átti að snúast um eitthvað allt annað. Það hefur ekki borið árangur. Það vilja öll tala um bílastæði. Það nennir engin að tala um börnin. Mér finnst þessi forgangsröðun röng. Bílastæðin verða á sínum stað hvort sem við ræðum þau eða ekki. Börnin sem detta út úr kerfinu fá hins vegar ekki nýtt tækifæri ef við látum hjá líða að ræða þeirra mál. Höfundur skipar 4. sæti á lista Pírata í Reykjavík.
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun