Handbolti

Al­freð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt

Sindri Sverrisson skrifar
Alfreð Gíslason heldur áfram að glíma við Danagrýluna.
Alfreð Gíslason heldur áfram að glíma við Danagrýluna. Getty/Jürgen Fromme

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu í handbolta urðu enn á ný að sætta sig við tap gegn Dönum þegar liðin mættust í vináttulandsleik, í Royal Arena í Danmörku í kvöld.

Danmörk vann öruggan átta marka sigur, 36-28, þremur og hálfum mánuði eftir að hafa einnig unnið Þýskaland í úrslitaleik Evrópumótsins í Danmörku.

Danir voru 21-13 yfir í hálfleik í kvöld og þó að Þjóðverjar næðu að minnka muninn í þrjú mörk þá var sigurinn aldrei í hættu.

Hornamaðurinn Emil Jacobsen var valinn maður leiksins en hann skoraði sjö mörk í fyrri hálfleiknum og átta mörk alls. Mathias Gidsel varð hins vegar markahæstur Dana með tíu mörk og Emil Nielsen varði 19 skot.

Liðin mætast aftur á sunnudaginn en þá verða Þjóðverjar á heimavelli, í Köln.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×