Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar 15. maí 2026 19:42 Það er fallegt þegar pólitíkusar hlusta á fólk. Það virðist líka vera það helsta sem brennur á frambjóðendum til borgarstjórnar þetta árið – það þarf að hlusta á fólkið! Það er líka rétt. Verst hvað þau virðast bara vera að tala um að hlusta á mjög tiltekinn hóp af fólki. Fólkið sem er brjálað yfir borgarlínu, bílastæðum, þéttingu byggðar og svo framvegis. Um að gera að hlusta á þau – en fyrr má nú hlusta en dauðhlusta. Það eru sextán ár síðan meirihluti Samfylkingar og Besta Flokksins tók við borgarstjórn með um það bil þessi áform. Haustið 2013 tók ég þátt í að skipuleggja íbúafund þar sem handahófsúrtaki fólks á höfuðborgarsvæðinu var boðið að ræða mögulegar sviðsmyndir fyrir framtíðarskipulag svæðisins. Þetta fólk hafði alls konar skoðanir en eftir miklar umræður valdi yfirgnæfandi meirihluti þeirra (83%) sviðsmynd sem gerði ráð fyrir mikilli þéttingu byggðar. Hvernig væri að hlusta á þau? Á þeim tíma var þéttingarstefnan mótuð í grunninn og síðan hafa borgarbúar ítrekað kosið í meirihluta flokka sem eru á þeirri línu. Samkvæmt nýlegri könnun eru fleiri borgarbúar fylgjandi Borgarlínu en eru á móti – um 44% á móti um 37%. Má hlusta á þessi 44%? Neinei, það má náttúrulega bara hlusta á þau sem eru á móti. Við hin skulum bara sitja áfram föst í umferðinni fram á eftirlaunaaldurinn á meðan minnihluti fólksins hlustar aaaaðeins meira hvert á annað. Þetta er óþolandi orðræða. Við erum líka fólk og okkur langar bara að geta komist á milli staða og búið í borg þar sem er sæmilegt mannlíf víðar en á Lækjartorgi. Ég hef ekki einu sinni áhuga á skipulagsmálum! Og ég elska góðan einkabíl. Helst myndi ég vilja getað ekið óhindrað um alla borgina á notalegum nagladekkjum hvenær sem mér sýnist, geta lagt beint fyrir utan ríkið í Austurstræti, keypt kalda bjórinn sem Villi Þ. fjarlægði þaðan á sínum tíma, geymt bílinn þar fram yfir helgi og verið með óspektir á Austurvelli á meðan. En ég bý víst í borg með öðru fólki – og því fer fjölgandi. Fyrir utan alla túristana á Dusterum sem ýmist kunna ekki umferðarreglurnar eða fara alltof vel eftir þeim. Það er bara raunveruleikinn og það hefur ekkert með stefnu borgarstjórnar eða tilfinningar okkar í garð einkabílsins að gera. Það er líka kaldranalegur raunveruleiki að landrými er takmörkuð auðlind – sérstaklega það sem hægt er að byggja á hér á suðvesturhorninu. Til að koma okkur öllum fyrir hérna og reyna að lágmarka alla þessa biluðu traffík getum við ekki bara vaðið áfram eins og við gerðum þegar það bjuggu helmingi færri á þessu sama landssvæði – bara af því við viljum ekki horfast í augu við breytta tíma. Það mun koma aftan að okkur hvort sem við elskum einkabílinn eða ekki. En allt í lagi. Sumt fólk vill þráast við. Það hefur verið hlustað á það fólk í um sextán ár núna. Stundum þarf líka að taka ákvarðanir og fylgja þeim eftir, jafnvel þó eitthvað fólk sé ósátt. Annars gerist aldrei neitt. Höfundur er doktor í stjórnmálafræði (og fólk). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar