Höfrungahlaup Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar 18. maí 2026 14:31 Seðlabankastjórarnir reita hár sitt um þessar mundir. Þeir skilja ekki af hverju verðbólgan hjaðnar ekki. Þeir telja það jafnframt mikla ráðgátu, til margra ára, af hverju markaðsaðilar telji aðhald peningastefnunnar sé allt of mikið en geri á sama tíma ekkert ráð fyrir að verðbólgumarkmiðið náist. Seðlabankastjóri hefur sett þá spurningu fram á opinberum kynningarfundi peningastefnunefndar hvort markaðsaðilar séu mögulega kleifhugar! Seðlabankastjóri grípur gjarnan í einhver hálmstrá sér til varnar. Hann talar t.d. um frekju verkalýðsins, eyðslu almennings, allt of mikinn hagvöxt á tímum þegar engin merki eru um of mikinn hagvöxt og engin merki um frekju verkalýðsins. Allt eru þetta merki um ráðþrot. Seðlabankastjórarnir skilja ekki hvað það er sem þeir gera vitlaust. Munurinn á nálgun Seðlabanka Sviss og Seðlabanka Íslands Stórkostlegur munur er á nálgun svissneska seðlabankans og þess íslenska. Sá svissneski leggur alla áherslu á að gengi svissnesku greiðslumyntarinnar liggi hvar það hentar svissnesku raunhagkerfi best. Hann passar að hækka ekki vexti þannig að áhrifin birtist í ofreistu gengi á gjaldeyrismörkuðum. Sá íslenski er hins vegar með sérstakan kynningarkafla á heimasíðu sinni um lækkun verðbólgu um gengisfarveginn eins og það er kallað. Orðrétt segir á heimasíðu Seðlabanka Íslands: „Önnur miðlunarleið peningastefnunnar er í gegnum gengi krónunnar… Með því að auka muninn á milli innlendra vaxta og erlendra getur Seðlabankinn ýtt undir innstreymi fjármagns eða dregið úr útstreymi, þ.e.a.s. aukið eftirspurn eftir krónum. Við venjulegar aðstæður stuðlar því vaxtahækkun að hærra gengi krónunnar en ella sem stuðlar að lægra innflutningsverði og minni verðbólgu að öðru óbreyttu. Þar sem breytingar á gengi krónunnar breyta hlutfallslegu verðlagi innlendrar og erlendrar vöru og þjónustu, og þar með samkeppnisstöðu innlendra fyrirtækja gagnvart erlendum keppinautum, hafa þær einnig áhrif á utanríkisviðskipti og innlenda eftirspurn. Við hækkun gengis krónunnar verða erlendar vörur hlutfallslega ódýrari en áður sem beinir eftirspurninni út úr hagkerfinu að öðru óbreyttu. Eftirspurn eftir innlendri framleiðslu dregst því saman sem einnig ætti að leiða til minni verðbólgu að öðru óbreyttu.“ Seðlabanki Íslands telur sem sagt að ná megi jafnvægi og minni verðbólgu með hækkun stýrivaxta og hækkuðu gengi íslensku krónunnar á gjaldeyrismörkuðum. Íslenski Seðlabankinn er trúr þessari villukenningu sinni og starfar eftir henni óhikað og gegnum sneitt. Seðlabankinn hækkar stýrivexti kinnroðalaust til að ná niður verðbólgu í gegnum gengisfarveginn. Vissulega hamlar slík aðgerð hækkun vísitölu neysluverðs tímabundið en á sama tíma grefur hún undan fjármálalegum stöðugleika og innra virði krónunnar sem leiðir til aukins verðbólguþrýstings þegar frá líður. Höfrungahlaupið Til að átta sig á því hvað gerist þegar Seðlabankinn hækkar stýrivexti í þeim tilgangi að kæla verðbólgu í gegnum gengisfarveginn er nauðsynlegt að kafa aðeins í klassíska hagfræði. Til hjálpar er gott að nota hugtök Carls Mengers um innra og ytra virði peninga. Innra virðið stendur fyrir verðgildi greiðslumyntar á vinnusvæði sínu en ytra virðið ræðst af því hvað hægt er að kaupa fyrir greiðslumyntina á gefnum tímapunkti. Ætla mætti við fyrstu sýn að þetta sé sami hluturinn en þegar betur er að gáð er alls ekki svo og þar liggur einmitt lausn áðurnefndrar ráðgátu sem seðlabankastjórarnir ná ekki utan um. Til að skýra aðeins hver munur er á innra og ytra virði greiðslumyntar má vísa til stríðsins sem nú stendur yfir í Íran. Hækkun olíuverðsins sem afleiðing af stríðinu breytir engu um verðgildi krónunnar okkar, innra virði hennar stendur í stað. Hins vegar getum við keypt heldur minna fyrir krónuna vegna stríðsins og hins hækkaða olíuverðs. Ytra virðið hefur þannig lækkað á sama tíma og innra virðið stendur í stað. (Að öðru óbreyttu) Þegar Seðlabankinn hækkar stýrivexti í þeim tilgangi að styrkja krónuna á gjaldeyrismörkuðum með von um lægri verðbólgu hækkar hann ytra virði krónunnar. Við þetta slær á hækkun vísitölu neysluverðs tímabundið því með krónu er nú hægt að kaupa meira í útlöndum. Það sem seðlabankastjórarnir virðast alls ekki átta sig á er að slík aðgerð getur aldrei leit til nýs jafnvægis í hagkerfinu vegna þess að hún setur mikið álag á innra virði krónunnar, en það er einmitt innra virði krónunnar sem seðlabankastjórarnir eru ráðnir til að gæta eins og sjáaldri augna sinna. Við sjáum oft með skýrum hætti þessar afleiðingar hárra stýrivaxta. Verðhjöðnun kemur fram í gegnum erlend innkaup á sama tíma og innlend verðbólga er vaxandi ásamt vaxandi halla á viðskipum við útlönd. Háu stýrivextirnir sem eiga að lækka verðbólguna herða að raunhagkerfinu vegna verri lánakjara og verri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Afborganir húsnæðislána rjúka upp í umhverfi breytilegra vaxta. Byggingarkostnaður og leiguverð hækka. Þrengt er að láglaunastéttum. Allt þetta leiðir til þess að innra virði krónunnar gefur eftir og innlend verðbólga vex. Á endanum vegur rýrnun innra virðis krónunnar meira heldur en hækkun ytra virðis hennar á gengismörkuðum og verðbólgan mæld á mælikvarða vísitölu neysluverðs tekur að malla. Seðlabanki Íslands virðist aldrei læra sína lexíu. Hann virðist aldrei læra af mistökum sínum. Hann stundar höfrungahlaup frá hækkuðu ytra virði krónunnar í gegnum vaxtahækkun og hækkað gengi til afleidds lækkaðs innra virðis krónunnar og gengisfalls. Hann gefst aldrei upp á trú sinni við villukenninguna. Eftir gengisfallið hækkar Seðlabankinn ytra virðið á nýjan leik með vaxtahækkun og hækkuðu gengi og er alltaf jafn hissa þegar innlend verðbólga sýnir sig þegar innra virði krónunnar gefur eftir. Alltaf jafn hissa. Svo bendir hann á láglaunastéttir sem sökudólg, hvað laun á Íslandi séu svakaleg í samanburði við útlönd en áttar sig ekki á að eigin handvömm, háu stýrivextirnir og ósjálfbæra gengið skekkja reikninginn. Höfundur er vélaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Efnahagsmál Seðlabankinn Sviss Örn Karlsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun