Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Aron Guðmundsson skrifar 19. maí 2026 07:30 Salah og Slot eru engir perluvinir Vísir/Getty Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir ummæli Mohamed Salah um leikstíl Liverpool ekki koma sér á óvart. Maðurinn sé sjálfselskur. Það sannist enn og aftur.
Salah, sem er á förum frá Liverpool eftir yfirstandandi tímabil, sagði frammistöðu Liverpool á tímabilinu óásættanlega í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagði alla staðla hafa slaknað. Salah lenti í útistöðum við Arne Slot, knattspyrnustjóra Liverpool, í vetur þegar hlutverk hans fór minnkandi en titilvörn liðsins hefur verið meðal þeirra verri í ensku úrvalsdeildinni á þessari öld. Er færslan túlkuð sem gagnrýni á Slot sjálfan. „Þetta kemur mér ekki á óvart,“ sagði Carragher í útsendingu Sky Sports í kvöld. „Ég sagði öllum sem það vildu heyra að hann myndi koma með eitthvað annað fyrir lok tímabils. Að hann myndi varpa annarri sprengju ekkert ósvipað því sem Ronaldo gerði á leið sinni frá Manchester United. Ég átti kannski von á því samt sem áður að Salah myndi gera þetta eftir tímabilið. Þegar að hann væri farinn annað. En nei.“ Carragher sagði Salah sjálfselskan fyrir tveimur árum síðan þegar sá síðarnefndi greindi frá því í viðtali eftir leik gegn Southampton að ekki væri búið að bjóða honum nýjan samning. „Þau orð gilda enn núna,“ sagði Carragher í kvöld. „Liverpool á fyrir höndum afar mikilvga viku. Liðið er enn ekki búið að tryggja Meistaradeildarsæti og fókusinn ætti að vera á Liverpool FC, ekki Salah FC.“
Liverpool FC Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Sjá meira