Enski boltinn

Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn

Andri Broddason skrifar
Louis van Gaal er ósáttur með hvernig dvöl hans hjá Manchester United endaði.
Louis van Gaal er ósáttur með hvernig dvöl hans hjá Manchester United endaði. vísir/getty

Louis Van Gaal var þjálfari Manchester United á árunum 2014-2016 en var látinn fara eftir að gengi liðsins var ekki nægilega gott. Hann segir svindl Manchester City hafa leitt til þess að hann hafi ekki náð Meistaradeildarsæti með Manchester United sem er ástæðan fyrir því að hann var rekinn frá félaginu á sínum tíma.

Árið 2016 endaði Manchester City í fjórða sæti deildarinnar sem var síðasta Meistaradeildarsætið það árið. Manchester City var með jafnmörg stig og Manchester United en City var með betri markatölu og náði því Meistaradeildarsætinu.

Óháð nefnd innan ensku úrvalsdeildarinnar komst að því að Manchester City fékk pening á bak við tjöldin á árunum 2009-2018 í gegnum stuðningsaðila. Þannig hefur félagið farið fram hjá fjármálareglum deildarinnar og eyddi félagið meiri pening en það mátti gera.

Í viðtali við The Athletic sagði Van Gaal að tími hans hjá Manchester United hefði getað haft betri endi. Hann var látinn vita að hann yrði rekinn daginn eftir að hafa unnið F.A. bikarinn með Manchester United en hann lýsti því augnabliki sem einu af því versta á ferlinum hans.

Van Gaal sakaði Ed Woodward, þáverandi forstjóra Manchester United, um að fara á bak við sig til þess að ráða Jose Mourinho sem þjálfara. Hann endaði á því að taka við þjálfun liðsins eftir að Van Gaal var látinn fara.

Van Gaal segir refsingu Manchester City þurfa að vera sanngjarna en erfitt sé að breyta því sem búið er að gera. Sagan er eins og hún er og það er einfaldlega of seint að leiðrétta það sem gerðist fyrir tíu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×