Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Aron Guðmundsson skrifar 19. maí 2026 21:06 Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City Getty/Shaun Brooks Pep Guardiola neitaði að svara af eða á með framtíð sína sem knattspyrnustjóri Manchester City í viðtali eftir leik í kvöld þar sem vonir hans manna um Englandsmeistaratitil urðu að engu. Fastlega er gert ráð fyrir því að Spánverjinn sé á förum frá félaginu
Jafntefli Manchester City gegn Bournemouth í kvöld sér til þess að Arsenal er Englandsmeistari tímabilið 2025/26 í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár. Síðasti séns Pep Guardiola á enn einum titli sem stjóri Manchester City gæti því verið farinn en ensku blöðin greindu frá því í gær að Spánverjinn væri á förum frá félaginu eftir áratug í starfi. Í viðtali eftir leikinn gegn Bournemouth í kvöld neitaði Guardiola hins vegar að segja af eða á varðandi framtíð sína í Manchesterborg. „Ég á eitt ár eftir af samningi mínum við félagið. Reynsla mín frá fyrri árum segir mér að með því að greina frá ákvörðunum á miðju tímabili sé ávísun á slæm úrslit. Eins og þú skilur er samtal við formann félagsins það fyrsta sem ég þarf að eiga að tímabilinu loknu. Samtöl muni eiga sér stað að tímabilinu loknu. Svo auðvelt er það. Eftir þau samtöl verða ákvörðun tekin.“ Viðtalsmaður Sky Sports pressaði enn frekar eftir nánara svari frá Guardiola og fékk sama svar. Aðspurður hvort það væri enn eitthvað sem heillaði hann varðandi það að mögulega halda áfram með Manchester City sagði Guardiola: „Ég er hamingjusamasti maður í heimi, með að vera þjálfari þessa liðs. Þetta félag er einstakt.“ Hann óskaði Arsenal, og sínum fyrrverandi aðstoðarþjálfara Mikel Arteta, til hamingju með Englandsmeistaratitilinn. „VIð óskum Arsenal til hamingju, Mikel, leikmönnum og stuðningsmönnum. Verðskuldaðir meistarar. „Hann (Mikel Arteta) hefur lagt mikið á sig. Ég óska honum til hamingju.“
Manchester City Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Afmælisdagurinn sem aldrei kom Sport Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira