Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Olís 21. maí 2026 08:31 Marta Rut Pálsdóttir hjá Kaffitár og Thelma Björk Wilson sviðsstjóri smásölusviðs hjá Olís. Vilhelm Nýverið tóku Olís og Kaffitár höndum saman í að bæta þjónustu við viðskiptavini á ferðinni sem elska gott kaffi. Með uppsetningu Barista-kaffivéla í Norðlingaholti, Höfn, Selfossi, Borgarnesi, Hellu og nú nýverið á Húsavík, fá viðskiptavinir Olís aðgang að fyrsta flokks kaffihúsaþjónustu. „
Við vitum að eftirspurnin eftir góðu kaffi fyrir fólk á ferðinni hefur aukist til muna að undanförnu og það er okkur mikil ánægja að geta brugðist við henni með þessu samstarfi við Olís og við hlökkum til að færa enn frekar út kvíarnar þegar fram líða stundir,“ segir Marta Rut Pálsdóttir hjá Kaffitár. Sérhannaðir drykkir af kaffibarþjónum Kaffitárs Það er tilvalið fyrir fólk á ferðinni að staldra við og njóta kaffidrykkja sem eru sérhannaðir og lagaðir eftir kúnstarinnar reglum af kaffibarþjónum Kaffitárs. Þessi nýjung býður upp á fjölbreytt úrval kaffidrykkja, þar á meðal espresso, cappuccino, latte og fleiri tegundir. Gæði og bragð kaffibaunanna frá Kaffitári tryggja að hver drykkur er sannkölluð upplifun fyrir bragðlaukana. „Það skiptir okkur miklu máli að geta boðið upp á hágæða kaffi fyrir okkar viðskiptavini og er það liður í þeirri vegferð okkar að færa þjónustustöðvar Olís í áttina að því sem við kjósum að kalla þægindamiðstöðvar í framtíðinni,“ segir Thelma Björk Wilson, sviðsstjóri smásölusviðs hjá Olís. Norðlingaholt og Húsavík Þau sem kunna að meta gott kaffi geta nú notið bæði þæginda og gæða á einum stað, einstakrar kaffiupplifunar í hversdagslegu umhverfi. Þetta er meiriháttar viðbót við þjónustu Olís í Norðlingaholti og nú nýverið á Húsavík og örugglega eitthvað sem allir sannir kaffiunnendur verða að prófa.
Ferðalög Matur Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira