Vilhjálmur Bretaprins fagnaði titlinum með Aston Villa Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. maí 2026 22:58 Vilhjálmur Bretaprins gat ekki haldur aftur af gleðinni. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Vilhjálmur Bretaprins lét sig ekki vanta þegar Aston Villa spilaði úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Freiburg og fagnaði manna mest þegar sigurinn var í höfn.
Prinsinn af Wales er mikill stuðningsmaður Aston Villa og horfði þarna á sitt uppáhaldsfélag vinna Evrópubikar í fyrsta sinn síðan 1982, árið sem hann er fæddur. Eftir algjöra yfirburði Aston Villa í leiknum varð 3-0 niðurstaðan að lokum og Vilhjálmur sendi leikmönnum skilaboð fljótlega eftir leik. „Stórkostlegt kvöld!! Hamingjuóskir á alla leikmenn, þjálfara og þá sem koma að þessu ótrúlega félagi. 44 ár síðan við smökkuðum síðast á evrópskum málmi. Sérstaklega vil ég senda kveðjur til Boubakar Kamara, sem er meiddur en hefur verið svo stór hluti af velgengni liðsins.“ Prinsinn horfði spenntur á leikinn. Stu Forster/Getty Images Vilhjálmur var síðan viðstaddur verðlaunaafhendinguna og sá þegar fyrirliðinn John McGinn lyfti bikarnum á loft. „Hann er frábær náungi. Hann kom aðeins í búningsherbergið fyrir leik. Hann er mikill Villa-stuðningsmaður, svo hann myndi aldrei missa af þessum leik. Í rauninni er hann bara eðlilegur náungi en það er frábært að fá hans stuðning,“ sagði McGinn í viðtali eftir leik. PRINCE WILLIAM ABSOLUTELY LOVES IT 👑 pic.twitter.com/HQyyMyzfJK— Football on TNT Sports (@footballontnt) May 20, 2026 Vilhjálmur var ekki fæddur þegar Aston Villa vann síðast Evrópubikar, þann 26. maí 1982. Hann kom í heiminn rúmum mánuði síðar og átti eftir að verða ástfanginn af Aston Villa sem skólastrákur. Þegar allir bekkjarfélagarnir héldu með Manchester United eða Chelsea ákvað hann að fara aðra leið.
Evrópudeild UEFA Aston Villa FC Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira