Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson skrifar 25. maí 2026 12:32 Heyra má þau rök fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið að ef okkur líki ekki vistin, þá getum við einfaldlega sagt okkur úr sambandinu aftur. Þótt í stjórnarskrá ESB sé vissulega að finna úrsagnarákvæði, er sá veruleiki sýnd veiði en ekki gefin. Að ætla sér að ganga þarna inn og út eftir hentugleika er beinlínis fráleit hugmynd. Þessu komust Bretar rækilega að í sínu útgönguferli. Þetta sjötíu milljóna manna kjarnorkuveldi áttaði sig á því strax við upphaf samninga um útgöngu að það væri í raun búið að vera í ofbeldissambandi. Framganga Evrópusambandsins í samningaviðræðunum sýndi að því var fyrst og fremst mikið í mun að sjá til þess að öðrum aðildarríkjum dytti ekki í hug að reyna sömu vitleysu. Þessi reynsla Breta ætti svo sannarlega að kenna okkur þá lexíu að ESB er ekkert vinalegt bandalag þegar á reynir. Þvert á móti opinberast það sem skrímsli sem leggur sig fram um að rústa þjóðfélögum sem streitast á móti því. Samt sem áður var útganga Breta mun auðveldari fyrir þær sakir að þeir höfðu haft vit á því að láta ekki glepjast af evrunni. Ef Bretar hefðu verið búnir að taka upp sameiginlega mynt hefði útgangan verið á við kjarnorkuárás á breskt samfélag. Við Íslendingar höfum þegar fengið að kenna á þessu kerfi, líkt og kom á daginn eftir efnahagshrunið. Þá var það einmitt fullveldi okkar sem bjargaði því sem bjargað varð eftir innflutning á gjörsamlega ónýtu fjármálaregluverki ESB í gegnum EES-samninginn. Þessi saga undirstrikar að fagurgali Evrópusambandsins er nákvæmlega það og ekkert annað – bara fagurgali algjörlega án innistæðu. Þeir sem telja í fullri alvöru að Ísland geti gengið inn í sambandið og sagt sig úr því aftur eftir hentugleika ættu fyrst að sýna og sanna fyrir okkur hvernig þeir fara að því að skrúfa í sundur flugvél á flugi. Það er nefnilega nákvæmlega sama viðfangsefni og að ganga úr ESB og evru. Höfundur lærði viðskipta- og sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Eggert Sigurbergsson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Heyra má þau rök fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið að ef okkur líki ekki vistin, þá getum við einfaldlega sagt okkur úr sambandinu aftur. Þótt í stjórnarskrá ESB sé vissulega að finna úrsagnarákvæði, er sá veruleiki sýnd veiði en ekki gefin. Að ætla sér að ganga þarna inn og út eftir hentugleika er beinlínis fráleit hugmynd. Þessu komust Bretar rækilega að í sínu útgönguferli. Þetta sjötíu milljóna manna kjarnorkuveldi áttaði sig á því strax við upphaf samninga um útgöngu að það væri í raun búið að vera í ofbeldissambandi. Framganga Evrópusambandsins í samningaviðræðunum sýndi að því var fyrst og fremst mikið í mun að sjá til þess að öðrum aðildarríkjum dytti ekki í hug að reyna sömu vitleysu. Þessi reynsla Breta ætti svo sannarlega að kenna okkur þá lexíu að ESB er ekkert vinalegt bandalag þegar á reynir. Þvert á móti opinberast það sem skrímsli sem leggur sig fram um að rústa þjóðfélögum sem streitast á móti því. Samt sem áður var útganga Breta mun auðveldari fyrir þær sakir að þeir höfðu haft vit á því að láta ekki glepjast af evrunni. Ef Bretar hefðu verið búnir að taka upp sameiginlega mynt hefði útgangan verið á við kjarnorkuárás á breskt samfélag. Við Íslendingar höfum þegar fengið að kenna á þessu kerfi, líkt og kom á daginn eftir efnahagshrunið. Þá var það einmitt fullveldi okkar sem bjargaði því sem bjargað varð eftir innflutning á gjörsamlega ónýtu fjármálaregluverki ESB í gegnum EES-samninginn. Þessi saga undirstrikar að fagurgali Evrópusambandsins er nákvæmlega það og ekkert annað – bara fagurgali algjörlega án innistæðu. Þeir sem telja í fullri alvöru að Ísland geti gengið inn í sambandið og sagt sig úr því aftur eftir hentugleika ættu fyrst að sýna og sanna fyrir okkur hvernig þeir fara að því að skrúfa í sundur flugvél á flugi. Það er nefnilega nákvæmlega sama viðfangsefni og að ganga úr ESB og evru. Höfundur lærði viðskipta- og sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar