Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen skrifar 27. maí 2026 06:30 Komandi þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið er eitt stærsta pólitíska álitaefni sem Alþingi hefur tekist á við um langt skeið. Atkvæðagreiðslan snýst ekki aðeins um stjórnmál eða aukið alþjóðasamstarf heldur um framtíðarsýn þjóðarinnar, fullveldi Íslands og hvernig við viljum að ákvarðanir um landið okkar séu teknar til framtíðar. Við í Framsókn teljum eðlilegt að þjóðin hafi lokaorðið í jafn afdrifaríku máli. En lýðræði felst ekki eingöngu í því að ganga til kosninga og greiða atkvæði. Forsenda góðrar niðurstöðu er að almenningur hafi aðgang að skýrum upplýsingum og raunverulegt tækifæri til að mynda sér upplýsta skoðun. Þar tel ég ríkisstjórnina hafa brugðist nú þegar. Umræðan hefur of oft verið einfölduð niður í slagorð um lægri vexti, ódýrara húsnæði og betri lífskjör. Auðvitað vill þjóðin slíkt. En ákvörðun um mögulega aðild að Evrópusambandinu verður ekki tekin á grundvelli loforða eða einfaldra fullyrðinga. Hún krefst vandaðrar greiningar þar sem kostir og gallar eru lagðir heiðarlega fram með hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Eftir hverju er að slægjast? Lykilspurningin er þessi: Hvaða vandamál á aðild að Evrópusambandinu að leysa sem við getum ekki leyst sjálf? Og er hugsanlegt að við greiðum á endanum dýryverði fyrir slíka aðild? Við í Framsókn teljum að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins og innan EES-samningsins. Þar skipta bæði efnahagsleg og stjórnskipuleg sjónarmið máli, en ekki síður forræði þjóðarinnar yfir eigin auðlindum. Ísland byggir afkomu sína að stórum hluta á auðlindum eins og víðáttumiklum fiskimiðunum, grænni orkun og náttúrunni sjálfri. Sjávarútvegur og orkufrekur iðnaður standa undir stórum hluta útflutningstekna þjóðarinnar. Ákvarðanir um nýtingu þessara auðlinda eiga áfram að vera teknar hér heima. Reynslan annarra ríkja Það er athyglisvert að ekkert nágrannaríki Íslands í Norður-Atlantshafi hefur talið sér hag í því að ganga í Evrópusambandið. Norðurlönd utan Finnlands hafa einnig ákveðið að standa utan evrusamstarfsins. Ef evran væri sjálfkrafa lausn á efnahagsvanda, ef hún tryggði sjálfkrafa lægri vexti, stöðugleika og betri lífskjör, vaknar sú spurning hvers vegna Danir og Svíar hafa ekki tekið hana upp. Hvers vegna hefur Noregur kosið að standa utan Evrópusambandsins? Og hvers vegna hafa ríki á borð við Pólland og Tékkland, sem hafa náð miklum efnahagslegum árangri, valið að standa utan evrusvæðisins? Norðurlöndin hafa almennt staðið sterk efnahagslega á síðustu árum hvað varðar hagvöxt, kaupmátt og lífskjör. Ísland reis einnig hraðar upp eftir fjármálahrunið en mörg evruríki. Það sýnir að sjálfstæð efnahagsstjórn skiptir sköpum. Á sama tíma verðum við að ræða þá staðreynd að Evrópusambandið í dag er ekki það sama og fyrir tveimur eða þremur áratugum. Miðstýring hefur aukist og vald færst frá þjóðríkjum til Brussel. Ísland yrði lítið ríki innan stórs kerfis þar sem stærstu ríkin hafa mest áhrif. Lýðræði krefst skýrleika Áður en þjóðin er beðin um að taka afstöðu þurfa samningsmarkmið Íslands að liggja skýrt fyrir. Þjóðin á rétt á að vita hvaða hagsmuni er verið að verja og hvar mörkin liggja. Það er einfaldlega ekki nægilega vandað stjórnarfar að biðja þjóðina um að samþykkja aðildarviðræður án þess að fyrir liggi hvaða hagsmuni íslensk stjórnvöld hyggjast verja, hvaða rauðu línur séu til staðar og hvaða atriði séu ófrávíkjanleg fyrir Ísland. Þetta á sérstaklega við um sjávarútveg, orkumál, landbúnað, auðlindaforræði og stjórnskipulegt sjálfstæði þjóðarinnar. Í jafn afdrifaríku máli verðum við einnig að ræða lýðræðislegt lögmæti niðurstöðunnar. Eðlilegt er að velta fyrir sér lágmarksþátttöku í boðaðri atkvæðagreiðslu og hvernig tryggja megi að rödd landsbyggðar vegi ekki minna en höfuðborgarsvæðisins. Í þessu samhengi er gagnlegt að horfa til Sviss. Þar er í ákveðnum málum stuðst við svokallaðan tvöfaldan meirihluta þar sem bæði þarf stuðning meirihluta þjóðarinnar og meirihluta kantóna - kjördæma. Hugmyndin er einföld: að fjölmennustu svæðin hafi ekki ein og sér lokaorðið í málum sem snerta allt ríkið. Þjóðin á lokaorðið Ríkisstjórnin segist treysta þjóðinni til að taka ákvörðun. Á sama tíma hefur forsætisráðherra sagt að hún muni ekki leggja „lélegan samning“ fyrir þjóðina. Þá vaknar eðlilega spurningin: Hver á að meta hvort samningur sé ásættanlegur, ríkisstjórnin eða þjóðin sjálf? Ef þjóðin á að hafa lokaorðið hlýtur hún einnig að eiga rétt á að sjá niðurstöðuna og meta hana sjálf á eigin forsendum óháð áliti forsætisráðherra. Við í Framsókn styðjum áfram náið samband Íslands við Evrópu á sem flestum sviðum. En við trúum líka á fullveldi Íslands, forræði þjóðarinnar yfir eigin auðlindum og að framtíð landsins verði best byggð á eigin forsendum. Við eigum áfram að byggja á þeim styrkleikum sem hafa gert Ísland að einu farsælasta samfélagi heims en gera það á eigin forsendum, með ákvörðunarvaldið áfram hér heima og hagsmuni íslensku þjóðarinnar í forgrunni. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Ólöf Isaksen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Framsóknarflokkurinn Mest lesið „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun