Skipulagsbreytingar hjá Símanum Árni Sæberg skrifar 27. maí 2026 08:59 María Björk Einarsdóttir er forstjóri Símans. Síminn Stjórn Símans hf. hefur samþykkt breytingar á skipuriti félagsins sem fyrirhugað er að taki gildi 1. júlí næstkomandi. Eins og áður hefur verið upplýst er unnið að breyttu skipulagi samstæðunnar með færslu fjarskipta- og miðlarekstrar í dótturfélagið Síminn Rekstur ehf. frá og með 1. júlí næstkomandi.
Í tilkynningu þess efnis til Kauphallar segir að breytingarnar séu liður í því að skapa aukið svigrúm til vaxtar og þróunar samstæðunnar. Móðurfélagið, Síminn hf., sem fyrirhugað sé að muni bera heitið Ásar að undangengnum hluthafafundi, muni veita dótturfélögum skilgreinda stoðþjónustu og styðja við þróun samstæðunnar í heild. María Björk Einarsdóttir verði áfram forstjóri móðurfélagsins og muni jafnframt gegna stöðu forstjóra Símans Rekstrar ehf. Þá er tekið fram að umræddar breytingar muni ekki hafa nein áhrif á þjónustu Símans gagnvart viðskiptavinum. Hjörtur, Logi og Ragna til Ása Þrjú svið muni heyra undir móðurfélagið; fjármálasvið, upplýsingatækni og mannauður og rekstur. Þrír framkvæmdastjórar muni starfa hjá móðurfélaginu. Hjörtur Þór Steindórsson muni áfram leiða fjármálasvið félagsins og Logi Karlsson stýra upplýsingatæknisviði. Ragna Margrét Norðdahl taki við sem framkvæmdastjóri mannauðs og rekstrar. Ragna Margrét hafi starfað hjá Símanum um árabil og gegnt lykilhlutverki í þróun mannauðsmála sem mannauðsstjóri félagsins auk þess að bera ábyrgð á fasteignarekstri, stefnuinnleiðingu og verkefnastýringu. Stýra sömu sviðum áfram Fjarskipta- og miðlarekstur samstæðunnar verði rekinn í óbreyttri mynd í dótturfélaginu Síminn Rekstur ehf. Samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Símanum hf. muni Logi Karlsson gegna starfi framkvæmdastjóra tækniþróunar hjá Símanum Rekstri ehf. Berglind Björg Harðardóttir, Sæunn Björk Þorkelsdóttir og Birkir Ágústsson verði framkvæmdastjórar hjá Símanum Rekstri ehf. og stýra þar sömu sviðum og þau stýra í dag. Berglind verði framkvæmdastjóri einstaklingssviðs, Sæunn Björk framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og Birkir framkvæmdastjóri miðla.
Síminn Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira