Um meintan krónuflótta Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 28. maí 2026 08:30 Fjölmargir ráðherrar, stjórnarliðar og aðrir ESB-sinnar hafa haldið því skammarlaust fram að íslensk fyrirtæki, sem færa bókhald í erlendri mynt, séu að „flýja íslensku krónuna“. Hér séu þess vegna tvö hagkerfi: krónuhagkerfið sem almenningur býr í og síðan evruhagkerfið sem fyrirtækin geti valið að starfa í. Það er auðvitað engin tilviljun að evran er notuð sem samnefnari, þótt fjölmörg íslensk fyrirtæki geri upp í bandarískum dollar - m.a. Landsvirkjun. Hið rétta er að íslensk fyrirtæki geta fengið heimild til að gera upp rekstur sinn og efnahag í erlendri mynt. Þetta á t.a.m. við um félög sem starfa að mestu erlendis eða hafa verulegan hluta af tekjum sínum í erlendum gjaldmiðli. Þessi fyrirtæki greiða hér áfram skatta og gjöld og greiða laun hér á landi, m.a. fyrirtæki í sjávarútvegi eða ferðaþjónustu. Margir hafa apað þessa orðræðu upp eftir ráðherrum og stjórnarliðum. Sem dæmi má nefna Ríkisútvarpið, sem hefur haldið úti þessum áróðri m.a. gegnum Kveik, og auðvitað Heimildin. Ráðherrar vita betur – fjölmiðlamenn ættu að vita betur Ráðherrar og stjórnarliðar vita hins vegar auðvitað betur. Fjölmiðlamenn ættu auðvitað að vita betur, en ég læt þá njóta vafans með ásetninginn í bili. Staðreyndin er sú að heimildina til að halda bókhald með þessum hætti er að finna í lögum um ársreikninga. Það þekkir Þorgerður Katrín mætavel, enda tryggði hún heimildina með atkvæði sínu á Alþingi á sínum tíma. Það gerði Þórunn Sveinbjarnardóttir reyndar líka. Þá hefur Gylfi Magnússon rakið þetta skilmerkilega á Evrópuvefnum, upplýsingaveitu um ESB og Evrópumál. Þar fer hann yfir að þessi heimild ársreikningalaga sé til þess fallin að gefa skýrari mynd af rekstrinum. Það sé hins vegar almennt „enginn sérstakur fjárhagslegur ávinningur“ af þessu bókhaldsfyrirkomulagi. Það sé „misskilningur sem stundum heyrist í þjóðmálaumræðunni að því fylgi mikill sparnaður að gera upp í annarri mynt en krónum.“ Misskilningur sem heyrist m.a. reglulega á Alþingi, síðast í þessari viku. Evrópsk fyrirtæki flýja evruna Þetta er reyndar þekkt fyrirkomulag á evrusvæðinu þar sem fjölmörg evrópsk fyrirtæki færa bókhald sitt í annarri mynt en evru, aðallega í bandarískum dollar. ESB-sinnar (Ríkisútvarpið?) vilja þá væntanlega meina að fyrirtækin séu að flýja evruna? Er það til of mikils mælst að ráðherrar og stjórnarliðar sem saka aðra um að „dreifa falsupplýsingum“, jafnvel um lygar, valdi ekki stöðugri upplýsingaóreiðu þegar við ræðum hér aðild Íslands að ESB? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar