Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar 28. maí 2026 13:32 Góð geðheilsa er ein forsenda lífsgæða, virkni og þátttöku fólks í samfélaginu og á vinnumarkaði. Samt benda gögn til þess að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu sé mjög háð efnahag fólks. Kostnaður við að sækja geðheilbrigðisþjónustu getur orðið til þess að fólk frestar því að leita sér aðstoðar eða sleppir því alveg, jafnvel þó þörfin sé mikil. Í nýrri greiningu ASÍ um aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er dregin saman mynd af kostnaði, ójöfnuði í aðgengi og tengslum geðheilsu við félagslega og efnahagslega stöðu. Þar kemur meðal annars fram að Ísland sker sig úr þegar horft er til þess hversu stór hluti þeirra sem telja sig þurfa geðheilbrigðisþjónustu sækja hana ekki vegna kostnaðar. Kostnaður útilokar fólk frá þjónustu Samkvæmt gögnum Eurostat frá 2019 höfðu 34% þeirra sem töldu sig þurfa slíka þjónustu á Íslandi ekki fengið hana eða ekki sótt hana vegna kostnaðar. Hlutfallið var 16% í Danmörku, 9% í Svíþjóð, 1% í Noregi og 30% í Finnlandi. Til samanburðar var hlutfall þeirra sem fengu ekki almenna læknisþjónustu vegna kostnaðar aðeins 4% á Íslandi. Það bendir til þess að kostnaður sé mun stærri hindrun þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu en öðrum þáttum heilbrigðisþjónustunnar. Þetta skiptir máli vegna þess að þörfin fyrir geðheilbrigðisþjónustu virðist ekki hafa minnkað. Samkvæmt Lýðheilsuvaktinni mátu 30% fullorðinna andlega heilsu sína slæma eða frekar slæma árið 2025, samanborið við 24% árið 2019. Hlutfallið er sérstaklega hátt meðal ungs fólks og þeirra sem standa verr fjárhagslega. Af þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman metur yfir helmingur andlega heilsu sína slæma. Sambærilegt mynstur kemur fram í gögnum um launafólk. Í skýrslu Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, mælist hlutfall launafólks innan ASÍ og BSRB með slæma andlega heilsu 29%. Hlutfallið er hærra meðal kvenna og innflytjenda og skýr munur kemur fram eftir tekjum. Meðal þeirra sem hafa lægstu heimilistekjurnar mælist hlutfall þeirra sem búa við slæma andlega líðan um 41%, en í efstu tekjuhópum er hlutfallið undir 20%. Þessar niðurstöður draga fram að geðheilsa tengist félagslegri og efnahagslegri stöðu með skýrum hætti. Sama mynd birtist þegar horft er til aðgengis að þjónustu. Niðurstöður Eurostat sýna mun eftir tekjuhópum meðal þeirra sem neita sér um geðheilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. Í lægri tekjuhópum var hlutfallið á bilinu 40–50%. Það þýðir að þeir hópar sem mælast með verri andlega heilsu eru jafnframt líklegri til að mæta fjárhagslegum hindrunum þegar kemur að því að sækja sér þjónustu. Geðheilbrigði verður því ekki eingöngu skoðað sem afmarkað heilbrigðismál. Fjárhagsstaða, húsnæðisöryggi, vinnuaðstæður og félagslegt öryggi hafa áhrif á líðan fólks. Aðgerðir sem bæta afkomu og draga úr óöruggri stöðu fólks geta því einnig haft forvarnargildi. Samhliða þarf að tryggja að fólk geti leitað sér viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu þegar þörf er á, óháð efnahag. Afleiðingar takmarkaðs aðgengis Takmarkað aðgengi að tímanlegri og viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu getur aukið líkur á að veikindi versni og dragist á langinn, með þeim afleiðingum að fólk hverfur tímabundið eða varanlega af vinnumarkaði. Langtíma fjarvera frá vinnu hefur veruleg áhrif á heilsu og lífsgæði einstaklinga og getur jafnframt dregið úr líkum á endurkomu til starfa. Ummerki vandans birtast víða. Gögn frá stéttarfélögum, VIRK og Tryggingastofnun sýna að geðheilbrigðisvandi er stór þáttur í veikindum og skertri starfsgetu. Það undirstrikar mikilvægi þess að fólk fái stuðning fyrr, áður en vandinn verður alvarlegri og afleiðingarnar meiri fyrir einstaklinginn, fjölskyldu hans og samfélagið allt. Bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er brýnt velferðar-, heilbrigðis- og vinnumarkaðsmál. Gögnin sýna að kostnaður stendur í vegi fyrir því að margir fái þá þjónustu sem þeir þurfa, og að hindranirnar bitna harðast á þeim sem þegar standa verr fjárhagslega. Við því þarf að bregðast. ASÍ telur brýnt að stjórnvöld fylgi eftir þeim aðgerðum sem þegar hafa verið settar fram og tryggi að geðheilbrigðisþjónusta verði hluti af aðgengilegri grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins, óháð greiðslugetu fólks. Bætt aðgengi að þjónustu, öflugar forvarnir og afkomuöryggi eru lykilforsendur góðrar heilsu, stöðugrar þátttöku fólks á vinnumarkaði og sjálfbærni velferðarkerfisins. Höfundur er hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands og starfsmaður heilbrigðisnefndar sambandsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Bragadóttir Geðheilbrigði Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar