Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 29. maí 2026 10:02 Í greininni „Ísland og nýja djobbið“ sem Dóra Magnúsdóttir skrifar 27. maí 2026 á vísir.is heimfærir hún aðlögunarviðræðurnar við ESB upp á atvinnuviðtal og endar greinina á þessum orðum: „Það skaðar nú varla að heyra hvað þau hafa upp á að bjóða - eða hvað?“ Henni láðist að geta þess að Ísland veit alveg hvað er í pakkanum, það stendur allt í lögum ESB sem er 95% óumsemjanleg og erum við skyldug til þess að beygja okkur undir þau, þótt það passi illa við eyju lengst úti í hafi, langt, langt í burtu frá Brussel, þar sem allar ákvarðanir eru teknar. Hún kom heldur ekkert inn á það að atvinnurekandinn (ESB) kæmi heim til Íslands og skoðaði fjármálin, viðskipti heimilisins, hvaða vini landið ætti og hver réði ef ágreiningur kæmi upp. Einnig fórst það alveg fyrir að nefna að Ísland er ekki bara að ráða sig til starfa heldur alla afkomendur sína um óákveðna framtíð. Hún nefndi ekki heldur að Ísland er sjálfstætt starfandi og á í góðu samstarfi við lönd víða um heim. Svo þegar kemur að ráðningarsamningnum þarf Ísland að uppfylla ákveðin skilyrði (pakkann), það þarf að hætta að tala við suma vini sína og eiga sömu vini og atvinnurekandinn, það þarf að hætta að versla þar sem það er með ágætis samninga og versla bara við búðirnar sem atvinnurekandanum þóknast . Það þarf að taka lán hjá banka atvinnurekandans til að borga sínar skuldir til að ná afborgunum niður í ásættanlega upphæð, Ísland þarf að breyta lögum sínum (stjórnarskránni) til að atvinnurekandinn geti ráðið meiru um heimilishaldið og samþykkja að lög atvinnurekandans séu æðri lögum Íslands. Þetta þarf Ísland að gera áður en það tekur endanlega ákvörðun um hvort það tekur vinnuna eða hafnar henni. Þið fyrirgefið en ég fæ ekki betur séð en að það geti skaðað að sjá hvað er í boði, því þegar við erum búin að breyta þessu öllu og eyða mörgum milljörðum í þetta, því ferlið kostar mikið, sjá grein mína ESB-Pakkinn, það verður kannski ekki svo auðveldlega aftur snúið. Við höfum það ágætt, af hverju að eyðileggja það sem við höfum? Höfundur er í stjórn Suðurlandsdeildar Til vinstri við ESB og langamma Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar