Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 29. maí 2026 09:47 Deila Icelandair og flugmanna hefur ekki farið framhjá neinum. Hún snýst ekki aðeins um kjör flugmanna heldur stærra álitaefni: hvort fámennur hópur eigi að geta haft tangarhald á einni mikilvægustu lífæð íslensks samfélags. Lífæð Íslands til umheimsins Tilvist öflugs og áreiðanlegs flugfélags sem tengir Ísland við umheiminn er forsenda þess að íbúar landsins búi við sambærileg lífsgæði og í öðrum vestrænum ríkjum. Án sterkra flugtenginga verður Ísland einangraðra, lífskjör verri og tækifæri fólks færri. Þegar starfsemi félags eins og Icelandair raskast er það því ekki einkamál fyrirtækisins og starfsstétta þess heldur þjóðhagslegt hagsmunamál. Undanfarnar vikur hefur Icelandair þurft að fella niður fjölmargar flugferðir vegna áhafnarskorts. Félagið hefur sakað flugmenn um ólögmætar aðgerðir og sagt vandann meðal annars stafa af því að flugmenn hafi skyndilega hætt að selja frídaga sína. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur hafnað því og sagt vandann liggja í mönnun og flugáætlun Icelandair. Hver sem skýringin er blasir við að kerfið er óheilbrigt. Fámenn starfsstétt getur haft úrslitaáhrif á rekstur félags sem þjóðarbúið allt treystir á. Tangarhald fárra aðila Kjarninn í málinu eru svokölluð forgangsréttarákvæði. Það eru ákvæði í kjarasamningum sem tryggja félagsmönnum tiltekins stéttarfélags forgang að störfum hjá ákveðnum vinnuveitanda eða á tilteknu starfssviði. Í framkvæmd geta þau þýtt að fyrirtæki hafi ekki heimild til að ráða hæft fólk til starfa nema það falli innan viðkomandi stéttarfélag. Slík ákvæði búa til lokuð kerfi. Aðgangur að störfum ræðst þá ekki aðeins af hæfni, reynslu og þörfum fyrirtækisins, heldur einnig af aðild að tilteknu stéttarfélagi. Það veitir fámennum hópi óeðlilega sterka stöðu gagnvart fyrirtæki sem gegnir lykilhlutverki í íslensku hagkerfi. Eðlileg réttindi launafólks eru eitt. Samningsbundið tangarhald yfir störfum hjá lykilfyrirtæki í þjóðarbúskapnum er annað. Stéttarfélög eiga að verja hagsmuni félagsmanna sinna, en þau eiga ekki að geta lokað vinnumarkaði þannig að aðrir eigi ekki raunhæfan möguleika á störfum nema þeir lúti valdi tiltekins félags. Félagafrelsi og danska fordæmið Hér er um að ræða grundvallarspurningu um félagafrelsi, sem er stjórnarskrárvarinn réttur. Ef einstaklingur þarf að vera í tilteknu stéttarfélagi til að eiga möguleika á starfi, þá er félagafrelsið ekki raunverulegt. Það dugar ekki að segja að enginn sé formlega neyddur til að ganga í félag ef fólk er í reynd útilokað frá störfum nema svo sé. Danir hafa þegar gengið í gegnum þessa umræðu. Mannréttindadómstóll Evrópu komst árið 2006 að þeirri niðurstöðu að ákvæði þar sem aðild að ákveðnu stéttarfélagi var í reynd skilyrði fyrir ráðningu eða áframhaldandi starfi brytu gegn 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í frumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi um félagafrelsi á vinnumarkaði er vísað til þess að forgangsréttarákvæði megi leggja að jöfnu við skylduaðild eða útilokunarákvæði. Þar kemur einnig fram að Danmörk hafi bannað slík ákvæði í kjölfar dómsins og að Ísland sé meðal þeirra fáu ríkja þar sem slík ákvæði hafi verið látin viðgangast. Alþingi bregðist við Það á ekki að vera hlutverk Alþingis að taka afstöðu með Icelandair gegn flugmönnum eða flugmönnum gegn Icelandair í kjaradeilu. En það er hlutverk Alþingis að tryggja að lög og kjarasamningar á Íslandi samrýmist stjórnarskrárvörðu félagafrelsi, heilbrigðri samkeppni og almannahagsmunum. Alþingi ætti að setja lög sem fella forgangsréttarákvæði úr gildi í íslenskum kjarasamningum. Þegar forgangsréttarákvæði sem veitir einum hópi svo sterka stöðu að hann getur haft úrslitaáhrif á rekstur fyrirtækis sem er hluti af þjóðarinnviðum þá er kerfið komið úr jafnvægi. Þá er ekki lengur verið að verja eðlileg réttindi launafólks, heldur skapa óeðlilegt ástand sem skaðar neytendur, atvinnulíf og samfélagið allt. Lífæð Íslands við umheiminn má ekki vera háð tangarhaldi örfárra aðila. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Brynjúlfur Björnsson Icelandair Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar