Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar 29. maí 2026 12:02 Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í sjö mismunandi löndum á lífsleiðinni og kynnast þannig af eigin raun bæði kostum og göllum ólíkra samfélaga, innan sem utan Evrópusambandsins. Sú reynsla hefur kennt mér að ekkert kerfi er fullkomið og engin ein lausn leysir öll vandamál. En hún hefur líka kennt mér að þau samfélög sem ná bestum árangri eru yfirleitt þau sem eru tilbúin að ræða framtíð sína af yfirvegun, hlusta á ólík sjónarmið og vera opin fyrir nýjum leiðum. Kannski er það ástæða þess að ég hef hugsað mikið um komandi umræðu um Evrópusambandið og áframhaldandi viðræður Íslands við ESB. Ekki síst vegna þess að ég á fimm dætur sem, eins og svo margt ungt fólk á Íslandi í dag, horfa inn í framtíð þar sem sífellt erfiðara er að eignast húsnæði og byggja upp fjárhagslegt öryggi. Háir vextir, verðbólga og óstöðugleiki eru ekki bara hagfræðileg hugtök heldur daglegar áskoranir sem hafa raunveruleg áhrif á líf fólks. Þess vegna finnst mér umræðan um framtíð Íslands svo mikilvæg. Ekki vegna þess að ég telji að aðeins ein leið sé rétt, heldur vegna þess að mér þykir vænt um þetta samfélag og vil, eins og flestir Íslendingar, finna leiðir til að gera gott samfélag enn betra. Flest okkar stefna í raun að sömu markmiðum. Við viljum öflugt atvinnulíf, meiri stöðugleika, lægri vexti og samfélag þar sem fólk og fyrirtæki geta blómstrað. Við viljum að frumkvæði, nýsköpun og einkaframtak fái að njóta sín og að stjórnvöld skapi skýran og stöðugan ramma utan um atvinnulífið. Við höfum séð hvað Ísland getur áorkað þegar hugmyndir, framkvæmdagleði og fjárfestingar vinna saman. Einkaframtak og öflugt atvinnulíf hafa skapað verðmæti sem standa undir lífsgæðum okkar allra. Við sjáum tækifæri í nýjum atvinnugreinum, hvort sem það eru gagnaver, hátækni, landeldi eða áframhaldandi uppbygging ferðaþjónustu. Við höfum alla burði til að byggja upp enn sterkara samfélag. Ágreiningurinn snýst því oft ekki um markmiðin sjálf heldur leiðina að þeim. Ein leið er að skoða nánara samstarf við aðrar Evrópuþjóðir. Að ræða hvort myntsamstarf, tenging krónunnar við evru eða jafnvel aðild að Evrópusambandinu geti stuðlað að meiri stöðugleika, lægri vöxtum og sterkari umgjörð fyrir íslenskt atvinnulíf. Aðrir telja að hægt sé að ná sömu markmiðum með öðrum leiðum og vilja halda fastar í núverandi fyrirkomulag. Það er fullkomlega eðlilegt. Í lýðræðissamfélagi eigum við að geta rætt ólíkar leiðir af yfirvegun og virðingu. Það sem mér finnst hins vegar áhyggjuefni er þegar þeir sem vilja skoða Evrópuleiðina eru sakaðir um að vera minni Íslendingar eða sagt að þeir ættu einfaldlega að flytja úr landi. Slík umræða þjónar engum tilgangi. Hún gefur í skyn að aðeins ein leið geti talist íslensk og að þeir sem hafa aðra sýn á framtíð landsins séu á einhvern hátt verri landsmenn. Ég tel að við getum verið ósammála um leiðina en samt verið jafn stolt af landinu okkar. Það er engin mótsögn í því að vera stoltur Íslendingur og vilja ræða hvort nánara samstarf við aðrar Evrópuþjóðir geti þjónað hagsmunum Íslands betur. Rétt eins og það er engin mótsögn í því að vera stoltur Íslendingur og komast að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Báðar skoðanir geta sprottið af sömu ást á landinu. Þetta er í raun ekkert ólíkt landsleik. Við höldum öll með Íslandi og viljum öll að Ísland nái árangri. Við erum kannski ekki sammála um hver sé besti þjálfarinn, hvaða leikmenn eigi að vera inni á vellinum eða hvernig eigi að stilla upp liðinu. En markmiðið er hið sama. Þess vegna eigum við að geta rætt þessi mál án upphrópana, án hræðsluáróðurs og án þess að fara í manninn. Við eigum ekki að óttast umræðuna heldur taka hana af yfirvegun, skoða kosti og galla og hlusta á ólík sjónarmið. Kannski leiðir sú umræða okkur til nánara samstarfs við aðrar Evrópuþjóðir. Kannski ekki. En það sem skiptir mestu máli er að þjóðin sjálf fái að taka upplýsta ákvörðun á grundvelli staðreynda og málefnalegrar umræðu. Og sama hvaða niðurstaða fæst að lokum verðum við áfram öll í sama liðinu. Liði Íslands. Höfundur er fjárfestir og frumkvöðull. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar