Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 1. júní 2026 09:01 „Viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu [í Evrópusambandið] er geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í Evrópusambandinu. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi. Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum sambandsins,“ segir í upplýsingabæklingi sem Evrópusambandsins hefur gefið út um umsóknarferlið að sambandinu. Nýverið áréttaði Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, að ekki væri rétt að tala um samningaviðræður. Harðir Evrópusambandssinnar, eins og Berglind Guðmundsdóttir, frambjóðandi Viðreisnar í síðustu þingkosningum, í grein á Vísi um helgina, hanga á því hálmstrái að þeir sem telja ekki rétt að samþykkja að hefja inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðinu í lok sumars vilji meina að alls ekkert sé að semja um við sambandið í þeim efnum. Hægt er vissulega að semja um ákveðna hluti í undantekningartilfellum eins og forystumenn Evrópusambandsins hafa bent á eins og svonefndar sérlausnir og tímabundnar undanþágur en ekki varanlegar undanþágur frá yfirstjórn sambandsins. Fyrst og fremst hefur verið átt við þetta þegar haft hefur verið á orði að ekkert væri að semja um. Telji fólk í góðu lagi að valdið yfir íslenzkum málum, til að mynda auðlindum Íslandsmiða og orkuauðlindinni, fari til Evrópusambandsins er skiljanlegt að það telji um eitthvað að semja. Þeir sem eru ekki til í það eru eðlilega þeirrar skoðunar að þar með sé ekkert um að semja. Sérlausnir breyta engu um það að valdið yfir viðkomandi málaflokki fari til sambandsins. Þær fela þannig einungis í sér afmarkaðar stjórnsýslubreytingar innan ramma regluverks þess en breyta alls engu um yfirstjórnina. Fyrir vikið er skiljanlegt að Evrópusambandið telji sjálft ekki rétt að tala um samningaviðræður enda snúist þær fyrst og fremst um aðlögun umsóknarríki að stjórnsýslu og löggjöf sambandsins samhliða viðræðu um inngönguna í það. „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig,“ segir þannig til dæmis á vefsíðu Evrópusambandsins. Hið sama kemur fram í viðræðuramma Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands. „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Og greinargerð með þingsályktun formanns Viðreisnar um þjóðaratkvæðið: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Hér áður var fyrirkomulagið með þeim hætti að ríki gengu fyrst í Evrópusambandið og síðan átti aðlögunin sér stað. Þessu var breytt fyrir tæpum þrjátíu árum síðan og aðlögunin færð fram fyrir formlega inngöngu í sambandið. Aðlögunin er þannig hluti af því að ganga í Evrópusambandið og á sér stað samhliða viðræðunum áður en samningur liggur fyrir. Vitanlega truflar þetta ekki þá sem vilja ganga í Evrópusambandið nokkurn veginn sama hvað. Eins og væntanlega Berglindi í samræmi við stefnu flokks hennar sem er innganga í sambandið án nokkurs fyrirvara um það hvað í henni fælist.Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar