Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar 2. júní 2026 15:30 Undanfarnar vikur hefur umræðan um stöðu læsis á Íslandi loksins fengið byr undir báða vængi. Tryggvi Hjaltason færði PISA-niðurstöðurnar í skýrt samhengi: Sem samfélag höfum við tapað verulegri grunnhæfni í öllum lykilgreinum, sem nemur tæplega tveimur töpuðum skólaárum hjá hverjum nemanda. Íris E. Gísladóttir afhenti fjármálaráðherra sláandi skýrslu um námsgagnaskort og bæði formaður Kennarasambands Íslands og sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar kalla nú eftir stóraukinni fjárfestingu. Þetta er löngu tímabær umræða. En hún er ekki ný. Það sem kom mér kannski mest á óvart síðustu vikur var að á málþingi um íslenskukennslu og stöðu læsis mætti ekki einn einasti þingmaður úr röðum ríkisstjórnarinnar. Ekki einn. Við erum að ræða eitt stærsta framtíðarmál þjóðarinnar. Læsi er grunnurinn að því að börn geti tekið þátt í samfélaginu, lokið námi og skapað sér tækifæri síðar á lífsleiðinni. Þegar stór hluti barna getur ekki lesið sér til gagns eftir grunnskóla erum við ekki lengur að tala um einstakt skólamál. Við erum að tala um samfélagslegt neyðarástand. Auðvitað hefði verið gott að sjá betri mætingu, sérstaklega þar sem um er að ræða samfélagsverkefni þar sem við þurfum öll að spila saman; foreldrar, kennarar, skólastjórnendur, atvinnulíf og stjórnvöld. Við erum að tala um framtíð barnanna okkar og það ætti að vera í algjörum forgangi. Sem faðir þriggja barna og aðili sem hefur undanfarin tvö ár unnið að þróun nýs lesefnis fyrir yngsta stig grunnskóla hef ég fengið innsýn í stöðuna sem tölurnar einar og sér ná ekki að sýna. Það sem hefur komið mér mest á óvart er ekki skortur á vilja. Foreldrar vilja hjálpa. Kennarar vilja hjálpa. Skólar vilja hjálpa. Alltof oft virðist kerfið sjálft engu að síður ekki hafa verkfærin, fjármagnið eða svigrúmið til að bregðast við. Á dögunum nefndi Tryggvi Hjaltason skort á námsgögnum sem einn stærsta veikleikann í kerfinu. Við sem höfum verið að skoða lestur barna á yngsta stigi sjáum sömu mynd. Endurnýjun lesefnis hefur verið hæg árum saman. Það er eitthvað verulega bogið við það þegar lítið teymi í sprotafyrirtæki getur þróað yfir þúsund nýjar sögur á tveimur árum á meðan börn í íslenskum grunnskólum vinna enn víða með efni sem var búið til löngu áður en foreldrar þeirra fæddust. Námsgagnaheftin Listin að lesa hafa þjónað sínu hlutverki vel og eiga enn sitt erindi. En þau geta ekki staðið ein og sér undir öllum þörfum nútímabarna. Við þurfum fjölbreyttara efni, nýtt efni og fleiri leiðir til að vekja áhuga barna á lestri. Í dag hefur Þróunarsjóður námsgagna aðeins um 39% af því fjármagni sem hann hafði árið 2007. Ísland ver um 8.500 krónum á nemanda í námsefnisgerð á ári. Finnar verja um 30.000 krónum. Afleiðingarnar birtast ekki bara í skýrslum heldur í daglegum veruleika kennara. Um 70% þeirra segjast nota eigið kennsluefni vegna skorts á viðeigandi námsgögnum. Þegar kennarar þurfa að verja sífellt meiri tíma í að útbúa efni frá grunni er minni tími eftir til kennslu og stuðnings við nemendur. Það er hvorki hagkvæmt né sjálfbært. Lífskjaramál Tryggvi Hjaltason reiknaði nýverið út að ef Ísland næði aftur þeim árangri sem mældist í PISA árið 2012 gæti það skilað um 27 milljónum króna á mann í aukinni landsframleiðslu yfir starfsævina. Fyrir þjóðarbúið nemur það um 14.500 milljörðum króna. Við erum því ekki bara að ræða stöðu íslenskukennslu. Við erum að ræða framtíðartekjur þjóðarinnar, samkeppnishæfni hennar og tækifæri næstu kynslóða. Þegar rætt er við foreldra kemur annað í ljós. Flestir vilja taka meiri þátt. Flestir vilja lesa meira með börnunum sínum. En margir nefna tímaskort og skort á lesefni sem hæfir getu og áhuga barnsins. Þetta eru ekki foreldrar sem vilja sitja hjá. Þetta eru foreldrar sem vilja taka þátt en vantar verkfæri til þess. Þess vegna þarf umræðan nú að færast frá áhyggjum og tali yfir í aðgerðir. Í fyrsta lagi þarf að efla fjárfestingu í námsefnisgerð og tryggja að Þróunarsjóður námsgagna hafi raunverulegt bolmagn til að sinna hlutverki sínu. Í öðru lagi þarf að skapa meira svigrúm fyrir nýsköpun og nýjar lausnir í menntakerfinu. Það er engin ástæða til að íslenskt hugvit og frumkvæði sé ekki nýtt betur þegar kemur að því að þróa námsefni og verkfæri fyrir skólasamfélagið. Í þriðja lagi þurfa stjórnvöld að sýna með afgerandi hætti að læsi sé forgangsmál. Ekki bara í ræðum og stefnum heldur í fjárveitingum, mætingu og aðgerðum. Við vitum hver vandinn er. Við höfum rætt hann árum saman. Það vantar ekki fleiri áhyggjur. Það vantar aðgerðir. Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi Lesa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar