Króna eða evra? Umræða sem á skilið meira en slagorð Bryndís Haraldsdóttir skrifar 3. júní 2026 15:20 Undanfarnar vikur hefur umræða um gjaldmiðlamál Íslands verið áberandi. Það er fagnaðarefni. Val á gjaldmiðli er meðal mikilvægustu efnahagslegu ákvarðana sem þjóð getur tekið og því eðlilegt að málið sé rætt af yfirvegun og á grundvelli staðreynda. Ný skýrsla um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum getur reynst gagnlegt innlegg í þá umræðu. Hún hefur þó þann galla að sumir hafa kosið að nota hana til að styðja fyrirframgefna pólitíska niðurstöðu fremur en að ræða af yfirvegun þær flóknu spurningar sem hún varpar upp. Það vakti athygli þegar stjórnarliðar töluðu um að heimilin gætu grætt hundruð milljarða króna við upptöku evru. Slíkar fullyrðingar eiga sér ekki beina stoð í skýrslunni. Þær skapa væntingar sem hvorki skýrslan né sérfræðingar hafa staðfest. Jafnvel fréttaflutningur á vegum stjórnvalda gaf á köflum einfaldari mynd af niðurstöðunum en efni skýrslunnar gefur tilefni til. Sannleikurinn er sá að bæði krónan og evran hafa kosti og galla. Kostir evrunnar eru vel þekktir. Með stærri gjaldmiðli myndi gjaldeyrisáhætta minnka, viðskiptakostnaður lækka og aðgangur að stærra fjármálasvæði aukast. Það gæti stuðlað að aukinni samkeppni og lægri fjármagnskostnaði. Á móti kemur að upptaka evru felur í sér að Ísland afsalar sér sjálfstæðri peningastefnu. Vaxtaákvarðanir yrðu teknar með hagsmuni evrusvæðisins í huga en ekki íslensks hagkerfis sérstaklega. Við myndum ekki lengur hafa eigin gjaldmiðil til að bregðast við áföllum sem eingöngu snerta Ísland. Það er ekki lítið mál fyrir lítið og opið hagkerfi sem hefur í gegnum tíðina þurft að takast á við náttúruhamfarir, sveiflur í sjávarútvegi, fjármálakreppur, heimsfaraldra og aðrar séríslenskar áskoranir. Athyglisvert var að hlusta á Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra á ráðstefnu um skýrsluna. Hann lagði áherslu á að leiðin að lægri vöxtum væri í grundvallaratriðum sú sama hvort sem Ísland væri með krónu eða evru. Háir vextir væru ekki fyrst og fremst afleiðing gjaldmiðilsins sjálfs heldur þróunar í raunhagkerfinu. Þar er komið að kjarna málsins. Það er freistandi að leita einfaldra lausna á erfiðum viðfangsefnum. Margir vilja trúa því að upptaka evru leysi vaxtavandann. Aðrir vilja halda því fram að krónan sé gallalaus. Hvorugt stenst skoðun. Vextir verða ekki varanlega lágir nema verðbólga sé lág og stöðug. Verðbólga verður ekki lág og stöðug nema ríkisfjármál séu ábyrg, vinnumarkaðurinn stöðugur og traust ríki á milli stjórnvalda, atvinnulífs og launafólks. Þetta eru sömu verkefnin hvort sem gjaldmiðillinn heitir króna eða evra. Reynsla Norðurlandanna er athyglisverð í þessu samhengi. Þar hafa menn byggt upp samfélagssátt um efnahagslegan stöðugleika sem hefur skilað lágri verðbólgu og lægra vaxtastigi. Sum lönd nota evru, önnur ekki. Sameiginlegi þátturinn er ekki gjaldmiðillinn heldur agi, ábyrgð og stöðugleiki. Þess vegna þarf umræðan um framtíð gjaldmiðilsins að vera heiðarleg. Við eigum ekki að draga upp mynd af evrunni sem töfralausn. En við eigum heldur ekki að líta fram hjá þeim kostum sem stærra gjaldmiðilssvæði getur haft í för með sér. Ef Evrópusambandið væri konfektkassi væri ekki hægt að velja aðeins uppáhaldsmolana. Með kassanum fylgja allir molarnir. Kostirnir og gallarnir. Tækifærin og skuldbindingarnar. Sama gildir um upptöku evru og mögulega aðild að Evrópusambandinu. Áður en slíkar ákvarðanir eru teknar eigum við að ræða heildarmyndina af yfirvegun og ábyrgð. Mikilvægasta verkefnið í dag er þó annað. Það er að ná tökum á verðbólgu og vöxtum, styrkja efnahagslegan stöðugleika og skapa heimilum og fyrirtækjum fyrirsjáanlegri framtíð. Það verkefni bíður okkar óháð því hvaða gjaldmiðil við notum. Höfundur er alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Bryndís Haraldsdóttir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar