Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson, Jóhannes Þór Skúlason og Sigurður Hannesson skrifa 3. júní 2026 17:32 Alþingi hefur tækifæri til að stuðla að samræmi, skilvirkni og trausti gagnvart eftirliti. Almenn umræðan um þetta tækifæri hefur verið takmörkuð þó málið sé stórt. Sumarhlé Það styttist í sumarhlé Alþingis og mörg mál keppast nú um athygli þingmanna og fjölmiðla. Sum þeirra vekja meiri hávaða en önnur. Eitt þeirra, sem hefur kannski ekki fengið þá athygli sem það verðskuldar, varðar framtíð heilbrigðiseftirlits í landinu. Þar er tekist á um breytingar sem geta skipt verulegu máli fyrir fyrirtæki, almenning og stjórnsýsluna sjálfa. Þingmálin og gagnrýnin Á vettvangi Félags íslenskra náttúrufræðinga var nýlega haldinn fundur þar sem samþykkt var ályktun með gagnrýni. Þar var meðal annars bent á að undirbúningur þyrfti að vera betri, að óvissa ríkti um framkvæmdina, að tryggja þyrfti réttindi starfsfólks og að heilbrigðiseftirlit í landinu gæti veikst. Áður höfðu skoðanagreinar verið ritaðar og fjölmiðlar m.a. fjallað um þá gagnrýni sem þingmálin hafa sætt. Fólk hræðist breytingar og slíkum áhyggjum má oft sýna skilning. Í grundvallaratriðum er þó lagt til að það eftirlit sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hafa sinnt verði fært frá þeim til tveggja ríkisstofnana. Gert er ráð fyrir að starfsfólkið geti fylgt með. Það er ekki verið að leggja til að eftirlitið verði lagt niður eða að öðrum verði falið að sinna því heldur að ábyrgð á eftirlitinu og framkvæmd þess verði flutt til innan hins opinbera kerfis. Galli Þeir eru ekki svo margir sem hafa út á starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins að setja sem eflaust hefur í flestum tilvikum reynt að gera sitt besta. Vandinn er hins vegar sá að starfsfólkið vinnur innan kerfis sem tryggir ekki samræmt og skilvirkt eftirlit. Margir þekkja dæmi um misræmi í eftirliti, t.d. um að mismunandi athugasemdir hafi verið gerðar við innihaldslýsingar matvæla milli umdæma heilbrigðiseftirlits og jafnvel mismunandi kröfur um hitastig á tilbúnum matvælum. Fjallað hefur verið um opinbera einkunnagjöf í heilbrigðiseftirliti í einu umdæmi en hún er ekki til staðar í öðrum. Þessi dæmi eru ekki aðalatriði heldur einkenni galla. Ef verkefnið er í grunninn hið sama um allt land, hvers vegna eru þá kröfur, framkvæmd og upplýsingagjöf mismunandi eftir umdæmum? Fyrirtæki sem starfar í fleiri en einu umdæmi á ekki að þurfa að ráða í það hvort athugasemd á einum stað þýði það sama og athugasemd annars staðar. Allt frá árinu 2001 hefur verið skoðað hvers vegna betur tekst ekki til við eftirlitið. Ítrekað hefur verið reynt að stoppa í göt og stagbæta án þess að viðunandi árangur næðist. Gallinn er ljós og við honum þarf að bregðast. Vandinn er ekki sá að eftirlitsfólk kunni ekki til verka, að sveitarfélög séu ófær um að sinna verkefnum sínum eða að fyrirtæki vilji ekki uppfylla kröfur. Vandinn er kerfið sjálft. Sameiginlegu verkefni hefur verið dreift á marga sjálfstæða aðila sem móta framkvæmdina hver með sínum hætti. Við slíkar aðstæður hefur reynst erfitt, og jafnvel ómögulegt, að tryggja nægilegt samræmi. Nauðsynlegar breytingar Þau samtök atvinnurekenda sem undirritaðir starfa fyrir styðja þær breytingar sem ætlunin er að gera og telja mikilvægt að þær komist til framkvæmda. Að sama skapi hafa samtökin lagt áherslu á að vandað verði til verka. Samtökin eru ekki að öllu leyti sammála um önnur atriði þingmálanna. Þau eru þó sammála um meginatriðið: að breytingar á stjórnskipulagi eftirlitsins þurfi að ná fram að ganga. Lagabreytingarnar sem nú er stefnt að leysa ekki allan vandann. Þær eru þó bráðnauðsynlegt fyrsta skref í átt að betra eftirliti. Þetta er ekki aðeins hagsmunamál fyrirtækja. Það er líka hagsmunamál almennings að eftirlit sé samræmt, skilvirkt og byggt upp þannig að það skili raunverulegum árangri. Eftirlit sem virkar misjafnlega eftir landshlutum þjónar hvorki fyrirtækjum né neytendum. Þess vegna skiptir máli að stíga þetta skref núna. Höfundar eru Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Alþingi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar