Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. júní 2026 08:47 Viðskiptaráð gyrti hressilega niður um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur í gær þegar það birti úttekt sína um hið popúlíska útspil að fá þjóðina að borðinu þegar kom að því að hagræða hjá ríkinu. Ríkisstjórnin leitaði til þjóðarinnar með hagræðingartillögur og hún svaraði með 10.000 slíkum. Flestum þeim stóru var hent í ruslið enda var þetta bara gert til ásýndar. Á endanum voru 57 tillögur nýttar sem áttu að skila sparnaði upp á 71 milljarð króna. Aðeins sex af þessum 57 tillögum hafa komið til framkvæmdar, 19 eru í vinnslu og ekki er byrjað á 26 þeirra. Það eru nú öll verk þessarar meintu verkstjórnar sem Íslendingar eru farnir að sjá að ræður ekkert við verkefnið. Ég hef lengi bent á þessa endalausu markaðsherferð sem þessi ríkisstjórn er. Öll fallegu grafík spjöldin með „Ræsum vélarnar“, „Lækkum dæluna“ og ég veit ekki hvað. Markaðsstofa Samfylkingarinnar er margfalt öflugri en ríkisstjórnin sjálf að koma nokkrum sköpuðum hlut í verk. Það, að þetta fyrsta útspil ríkisstjórnarinnar að höfða til þjóðarinnar og leyfa henni að vera hluti af meintri hagræðingu hjá ríkinu var bara byrjunin á því að segja eitt – og gera svo ekki neitt. Hér eru nokkur önnur dæmi: Hún ætlaði að koma ríkisfjármálum í lag en verðbólga, vextir og atvinnuleysi hækkar og hækkar. Hún ætlaði ekki að hækka skatta á fólk og fyrirtæki en braut ekki bara það loforð heldur er farin að skálda upp nýja skattstofna eins og hleðslugöt. Hún ætlaði að skila hallalausum fjárlögum en nú er forsendum fjárlaga alvarlega ógnað og stefnir jafnvel í fyrirséðan halla. Hún ætlaði ekki að kljúfa þjóðina með Evrópusambands umsókn en hefur gefist upp á að laga efnahagsmálin sjálf hér heima þannig þá er einfaldast að sameinast um að láta Evruna bjarga þessu. Og svo má áfram telja. Þetta er nú öll verkstjórnin sem talar og talar en gerir ekkert - nema hækka skatta. Höfundur er aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varaþingmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tómas Þór Þórðarson Mest lesið Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Sjá meira
Viðskiptaráð gyrti hressilega niður um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur í gær þegar það birti úttekt sína um hið popúlíska útspil að fá þjóðina að borðinu þegar kom að því að hagræða hjá ríkinu. Ríkisstjórnin leitaði til þjóðarinnar með hagræðingartillögur og hún svaraði með 10.000 slíkum. Flestum þeim stóru var hent í ruslið enda var þetta bara gert til ásýndar. Á endanum voru 57 tillögur nýttar sem áttu að skila sparnaði upp á 71 milljarð króna. Aðeins sex af þessum 57 tillögum hafa komið til framkvæmdar, 19 eru í vinnslu og ekki er byrjað á 26 þeirra. Það eru nú öll verk þessarar meintu verkstjórnar sem Íslendingar eru farnir að sjá að ræður ekkert við verkefnið. Ég hef lengi bent á þessa endalausu markaðsherferð sem þessi ríkisstjórn er. Öll fallegu grafík spjöldin með „Ræsum vélarnar“, „Lækkum dæluna“ og ég veit ekki hvað. Markaðsstofa Samfylkingarinnar er margfalt öflugri en ríkisstjórnin sjálf að koma nokkrum sköpuðum hlut í verk. Það, að þetta fyrsta útspil ríkisstjórnarinnar að höfða til þjóðarinnar og leyfa henni að vera hluti af meintri hagræðingu hjá ríkinu var bara byrjunin á því að segja eitt – og gera svo ekki neitt. Hér eru nokkur önnur dæmi: Hún ætlaði að koma ríkisfjármálum í lag en verðbólga, vextir og atvinnuleysi hækkar og hækkar. Hún ætlaði ekki að hækka skatta á fólk og fyrirtæki en braut ekki bara það loforð heldur er farin að skálda upp nýja skattstofna eins og hleðslugöt. Hún ætlaði að skila hallalausum fjárlögum en nú er forsendum fjárlaga alvarlega ógnað og stefnir jafnvel í fyrirséðan halla. Hún ætlaði ekki að kljúfa þjóðina með Evrópusambands umsókn en hefur gefist upp á að laga efnahagsmálin sjálf hér heima þannig þá er einfaldast að sameinast um að láta Evruna bjarga þessu. Og svo má áfram telja. Þetta er nú öll verkstjórnin sem talar og talar en gerir ekkert - nema hækka skatta. Höfundur er aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varaþingmaður
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar