Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar 5. júní 2026 13:00 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur lýsti því yfir áður en hún settist í embætti að hún ætlaði að vera borgarstjóri allra Reykvíkinga. Þetta er auðvitað innantóm yfirlýsing því að hún er reglum samkvæmt borgarstjóri allra Reykvíkinga - hvort sem fólki líkar það betur eða verr. En Hildur vill ekki vera borgarstjóri allra Reykvíkinga. Hún lét taka niður fána Úkraínu og Palestínu sem var flaggað við Ráðhús Reykjavíkur mánuðum saman. Fánarnir voru tákn þess að í ráðhúsinu lifði samúð og samstaða með þjóðum sem búa við hildarleik stríðsátaka og þjóðarmorðs. Hildur lét taka fánana til þess að segja þeim Reykvíkingum sem setja mannúð og mennsku í öndvegi að hún ætlar ekki að vera borgarstjóri þeirra. Þessi litlu tákn um að meirihluti borgarstjórnar stæði með mennskunni eru farin - það eru skilaboð til þeirra sem stunda og styðja þjóðarmorð og árásarstríð. Þeir sem gleðjast við svona aðgerðir eru Pútín, Netanyahu, Trump, Sigmundur Davíð, Stefán Einar og allir þeir einstaklingar leynt og ljóst styðja þjóðarmorð. Framsóknarmaðurinn vill ekki „umræður um alþjóðamál“ Einar Þorsteinssonar borgarfulltrúi Framsóknaflokksins segir flöggun fána Palestínu og Úkraínu vera „pólitíska sýndarmennsku“ - og nú sé „búið að koma skikki á þessi mál“. Framar verða ekki dregnir að húni fánar frá „einhverjum öðrum löndum sem eru langt í burtu“. Og Einar sagði einnig „að auðvitað stöndum við með mannréttindum“. Það er heimska að halda því fram að það sem „er langt í burtu“ komi fólki ekki við og að það sé mögulegt að styðja mannréttindi án þess að gera það. Því hvað voru fánarnir annað en tákn um stuðning við mannréttindi? Það að taka fánana niður er yfirlýsing um að árás á mannréttindi skipti ekki máli vegna fjarlægðar. Hildarleikur þjóðarmorðs og stríðsátaka kemur borgarstjórn Reykjavíkur ekki við, það er stefna hins nýja meirihluta. Raunveruleikinn Meirihluti Borgarstjórnar Reykjavíkur, með borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins í broddi fylkingar, hefur með þesari aðgerð veikt baráttuna gegn þjóðarmorð! Mörgum kann að þykja þetta hvöss orð og óréttmæt ályktun. En hver er raunveruleikinn? Hann er sá að borgarstjórn styður ekki þjóðir sem berjast gegn ofurvaldi - en styður með þögninni þá sem vilja brjóta niður þjóðir Palestínu og Úkraínu, drepa börn þeirra og ræna landinu þar sem þjóðirnar eiga sögu sem spannar þúsundir ára. Fánarnir við Ráðhúsið voru ekki mikil stuðningsyfirlýsing - en það var þó skref í rétta átt og mikilvæg í augum allra sem styðja mannréttindi Það þekkja allir söguna um manninn sem mótmælti ekki þegar þeir komu og settu gyðingana í útrýmingarbúðir - því hann var ekki gyðingur. Næst voru kommúnistanir teknir og hann mótmælti ekki því hann var ekki kommúnisti - og framhaldið þekkjum við. Þetta er sönn dæmisaga - og við erum stödd í þessari sögu. Sagan segir okkur að það er engin undankoma - annað hvort styður fólk mannréttindi allra eða menn afhenda ógnarvöldunum vettvanginn. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar