Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar 5. júní 2026 13:32 Þeir setjast við barborðið, panta sér drykk og biðja barþjóninn um álit á deiluefni. „Ég tel að ef við göngum í ESB, þá fari hér allt til helvítis,“ segir annar öfgamaðurinn. „Ég tel að ef við göngum ekki í ESB, þá fari hér allt til helvítis,“ segir hinn öfgamaðurinn. „Hvort kýst þú?“ spyrja þeir báðir í kór og líta á barþjóninn. Barþjónninn starir til baka. „Hvernig á ég að taka afstöðu út frá svona andstæðum fullyrðingum um vist í helvíti?“ „Trúðu mér,“ hrópa öfgamennirnir samtímis. Barþjónninn hallar sér fram. „Hingað á barinn hefur verið endalaus straumur af fólki sem talar með sama öfgafulla hætti og þið um kosti og galla aðildar að ESB og hvort yfirleitt eigi að ræða málið. Allir biðja mig um að taka afstöðu en ég get það ekki því öfgarnar í fullyrðingunum eru svo miklar. Svart er sagt hvítt og hvítt sagt svart. Ég man ekki eftir að hingað á barinn hafi ratað viðskiptavinur sem getur útskýrt fyrir mér æsingalaust og óhlutdrægt hverjir gætu verið kostir og gallar þess að athuga með aðild að ESB. Og með fullri virðingu fyrir ykkur tveimur öfgamönnunum sem sitjið hér við barborðið og drekkið óáfengan bjór, þá er það vitlausasta sem ég hef séð þegar ríkisstjórnin ákvað að dæla 10 milljónum króna í sitt hvor öfgasamtökin til að þau gætu kynnt öfgafulla afstöðu sína með og móti ESB.“ Öfgamennirnir hlógu. „Kanntu annan. Það skiptir engu máli þó að óhlutdrægar og trúverðugar upplýsingar verði settar fram. Við munum grafa undan öllu sem þar kemur fram, eins og sönnum öfgamönnum sæmir. Svarið við spurningunni um aðildarviðræður við ESB mun ekki ráðast af upplýstri umræðu heldur af því hvaða öfgar ná best í gegn.“ Höfundur er ráðgjafi í almannatengslum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ólafur Hauksson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Þeir setjast við barborðið, panta sér drykk og biðja barþjóninn um álit á deiluefni. „Ég tel að ef við göngum í ESB, þá fari hér allt til helvítis,“ segir annar öfgamaðurinn. „Ég tel að ef við göngum ekki í ESB, þá fari hér allt til helvítis,“ segir hinn öfgamaðurinn. „Hvort kýst þú?“ spyrja þeir báðir í kór og líta á barþjóninn. Barþjónninn starir til baka. „Hvernig á ég að taka afstöðu út frá svona andstæðum fullyrðingum um vist í helvíti?“ „Trúðu mér,“ hrópa öfgamennirnir samtímis. Barþjónninn hallar sér fram. „Hingað á barinn hefur verið endalaus straumur af fólki sem talar með sama öfgafulla hætti og þið um kosti og galla aðildar að ESB og hvort yfirleitt eigi að ræða málið. Allir biðja mig um að taka afstöðu en ég get það ekki því öfgarnar í fullyrðingunum eru svo miklar. Svart er sagt hvítt og hvítt sagt svart. Ég man ekki eftir að hingað á barinn hafi ratað viðskiptavinur sem getur útskýrt fyrir mér æsingalaust og óhlutdrægt hverjir gætu verið kostir og gallar þess að athuga með aðild að ESB. Og með fullri virðingu fyrir ykkur tveimur öfgamönnunum sem sitjið hér við barborðið og drekkið óáfengan bjór, þá er það vitlausasta sem ég hef séð þegar ríkisstjórnin ákvað að dæla 10 milljónum króna í sitt hvor öfgasamtökin til að þau gætu kynnt öfgafulla afstöðu sína með og móti ESB.“ Öfgamennirnir hlógu. „Kanntu annan. Það skiptir engu máli þó að óhlutdrægar og trúverðugar upplýsingar verði settar fram. Við munum grafa undan öllu sem þar kemur fram, eins og sönnum öfgamönnum sæmir. Svarið við spurningunni um aðildarviðræður við ESB mun ekki ráðast af upplýstri umræðu heldur af því hvaða öfgar ná best í gegn.“ Höfundur er ráðgjafi í almannatengslum.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar