Viðskipti innlent

Kvika sendi starfs­mönnum kalda kveðju

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ari Skúlason er formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Ari Skúlason er formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. SSF

Formaður Samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu segir skilaboð Kviku banka til starfsfólks skýr eftir að félagið greiddi milljarða í arð sama dag og ellefu var sagt upp. Botnlaus gróðafýsn stjórni ansi miklu í samfélaginu í dag. Forstjóri Kviku segir engin tengsl milli uppsagna og arðgreiðslu.

Kvika banki sagði í gær upp ellefu starfsmönnum í hagræðingaraðgerðum. Samdægurs fór fram hluthafafundur félagsins þar sem tillaga stjórnar um að greiða rúma tíu milljarða króna í arð var samþykkt. Frá byrjun 2025 hefur bankinn greitt hluthöfum tæpa 39 milljarða í arð.

Ari Skúlason, formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir tilkynningu Kviku óvenju skýra.

„Skilaboðin eru þau að árangurinn er frábær, starfsfólkið hefur skapað mjög góðan hagnað en hann á allur að fara til fjárfesta og við ætlum að fjárfesta. Þannig þetta er köld kveðja. Upp á síðkastið hefur verið í tísku hjá fjármálafyrirtækjum að bera fyrir sig gervigreind og þróun gervigreindar við uppsagnir eins og það sé sjálfsagt að segja upp vegna þess, samanborið við uppsagnir Rapyd í síðustu viku. Það er ekkert svoleiðis hjá Kviku, það er bara þannig að það gengur vel og þeir ætla að láta fjárfestana fá allt sem er skapað,“ segir Ari. 

Leitað til samtakanna

Starfsmennirnir skapi verðmætin.

„Þetta er svolítið merki um hvar heimurinn er staddur í dag. Það er þessi botnlausa gróðafýsn sem stjórnar ansi miklu. Við upplifum það mjög mikið á fjármálamarkaði,“ segir Ari.

Starfsmenn Kviku sem sagt var upp hafa leitað til samtakanna.

„Alveg strax, sko. Eins með Rapyd og Íslandsbanka. Sérstaklega með Rapyd, því það var stór uppsögn og kom óvænt,“ segir Ari. 

Engin tenging

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, kvaðst ekki geta veitt símaviðtal og óskaði eftir spurningum skriflega. Í svörum við þeim segir hann uppsagnirnar sársaukafullar og að allir í bankanum séu leiðir yfir því að kveðja góða félaga. Engin tenging sé milli arðgreiðslu gærdagsins og uppsagnanna. Arðgreiðslan sé vegna þess að eiginfjárstaða bankans hafi verið langt umfram kröfur eftirlitsaðila í kjölfar sölu Kviku á TM í fyrra og minni eiginfjárbindingar lánasafns.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×