Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar 6. júní 2026 23:00 Eftir því sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið nálgast, verður æ ljósara að utanríkisráðherra leitar nú stuðnings úr óvæntum áttum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir virðist leggja sérstaka áherslu á að fá erlenda stjórnmálamenn til landsins til að styrkja málstað sinn fyrir ESB-aðild, jafnvel þótt þeir séu sjálfir umdeildir og standi höllum fæti í eigin heimalandi. Heimsókn Beate Meinl-Reisinger Heimsókn Beate Meinl-Reisinger, utanríkisráðherra Austurríkis, er skýrt dæmi um þetta. Hún er formaður hins frjálslynda og eindregið ESB-sinnaða NEOS-flokks, sem hefur afar takmarkað fylgi í austurrískum stjórnmálum (svipað fylgi og Viðreisn). Þrátt fyrir það er henni nú stillt upp sem verðugum bandamanni íslenskra ESB-sinna. Þegar betur er að gáð vaknar sú spurning hvort slík heimsókn styrki málstað Þorgerðar eða afhjúpi fremur hversu langt hún er tilbúin að ganga í leit að erlendum stuðningi. Orðspor Heimsókn Beate Meinl-Reisinger í Austurríki Meinl-Reisinger hefur sætt harðri gagnrýni í Austurríki, ekki síst vegna afstöðu sinnar til hlutleysis landsins. Hlutleysi Austurríkis er djúpstætt pólitískt og þjóðlegt grundvallaratriði, en hún hefur sett fram sjónarmið sem margir telja ganga gegn þeirri hefð. Ummæli hennar um að Austurríki hafi aldrei verið pólitískt hlutlaust vöktu hörð viðbrögð, enda benda kannanir til þess að mikill meirihluti Austurríkismanna vilji halda í hlutleysi landsins. Þar liggur stærsti pólitíski veikleiki hennar: hún talar máli evrópskrar varnarsamvinnu og harðrar Brussel-línu í landi þar sem stór hluti almennings vill ekki hverfa frá hlutleysishugsjóninni. Gagnrýnendur hennar hafa einnig sakað hana um að ganga of langt í stuðningi við evrópska varnarmálastefnu, aukinn vopnabúnað og hernaðarlega stefnumótun ESB. Í þessu ljósi er athyglisvert að Þorgerður Katrín skuli velja einmitt slíkan stjórnmálamann sem táknrænan samherja í íslenskri umræðu um Evrópusambandið. Ísland er herlaust lýðveldi með eigin stjórnarskrárhefð og viðkvæma umræðu um fullveldi. Að sækja sér pólitískt skjól til ráðherra sem sjálf hefur verið gagnrýnd fyrir að ganga gegn hlutleysissjónarmiðum eigin þjóðar er varla merki um sterka stöðu. Meinl-Reisinger hefur einnig lent í erfiðum málum utan umræðunnar um hlutleysi. Afstaða hennar til mála í Mið-Austurlöndum hefur sætt gagnrýni, meðal annars af hálfu ísraelskra stjórnvalda. Hún hefur hafnað slíkri gagnrýni harðlega, en málið sýnir þó að hún er ekki sá sameinandi og óumdeildi stjórnmálamaður sem íslenskir ESB-sinnar virðast vilja láta að henni sé. Þá hefur hún sætt ásökunum um tvöfeldni við val á embættismönnum. NEOS hefur lengi byggt málflutning sinn á gagnrýni á pólitíska bitlinga, flokkspólitíska fyrirgreiðslu og skort á faglegu gagnsæi. Þegar Meinl-Reisinger sjálf er síðan gagnrýnd fyrir skipanir og tilnefningar sem tengjast eigin pólitísku baklandi verður veikleikinn augljós. Það sem flokkurinn gagnrýndi hjá öðrum virðist ekki endilega jafn óásættanlegt þegar hann kemst sjálfur nær valdinu. Einnig hefur hún sætt gagnrýni fyrir forgangsröðun fjármuna í utanríkismálum, meðal annars vegna stuðnings við Úkraínu og Sýrland, auk alþjóðlegra framboða Austurríkis, á sama tíma og staða ríkisfjármála er þröng. Slík gagnrýni er kunnugleg víða í Evrópu: almenningur spyr hvers vegna fjármunir renni út fyrir landsteinana á sama tíma og eigin samfélög glíma við verðbólgu, húsnæðisvanda, álag á innviði og vaxandi óánægju með stjórnmálakerfið. Kunnugleg umræða. Innri vandræði NEOS bæta ekki úr skák. Flokkurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að eiga í sjálfsmyndarkreppu í utanríkismálum og fyrir að þola illa opinbera umræðu um viðkvæm mál, svo sem NATO og öryggisstefnu. Það veikir stöðu Meinl-Reisinger enn frekar að hún virðist ekki aðeins vera umdeild utan flokksins, heldur einnig tákn um spennu innan eigin stjórnmálahreyfingar. Pólitískar glansmyndir Þorgerðar Katrínar af ESB Þetta mál snýst því ekki aðeins um eina heimsókn erlends ráðherra til Íslands. Hún varpar ljósi á pólitíska aðferðafræði Þorgerðar Katrínar. Þegar íslenskir kjósendur eiga að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið, er reynt að draga upp glansmynd af alþjóðlegum stuðningi. Í því skyni eru erlendir ESB-sinnar kallaðir til, þótt þeir eigi sjálfir í pólitískum vandræðum heima fyrir. Þeir eru kynntir sem fyrirmyndir eða bandamenn, þótt málstaður þeirra njóti ekki endilega trausts meirihluta í eigin heimalöndum. Málstaður sem þarf að styðja sig við slíka táknmyndapólitík stendur veikum fótum. Ef ESB-aðild er raunverulega svo augljóslega í þágu Íslands, hvers vegna þarf þá að sækja siðferðilegan og pólitískan stuðning til erlendra ráðherra sem sjálfir eru sakaðir um að ganga gegn þjóðlegum grundvallarsjónarmiðum í eigin landi? Íslendingar eiga ekki að láta heillast af sviðsettum heimsóknum eða innfluttum áróðri. Austurríki er þegar í Evrópusambandinu. Ísland er það ekki. Austurríki glímir við eigin átök um hlutleysi, varnarmál, ESB-stefnu og þjóðarvilja. Þau átök ættu að vera Íslendingum víti til varnaðar en ekki fyrirmynd. Íslendingar trúa ekki hverju sem er Þorgerður Katrín má auðvitað hitta erlenda ráðherra og ræða Evrópumál. Þegar slíkum heimsóknum er hins vegar stillt upp sem stuðningi við íslenska ESB-vegferð þarf almenningur að spyrja gagnrýninna spurninga: Hverjir eru þessir svokölluðu bandamenn hennar? Hvers vegna eru þeir valdir? Hvaða hagsmunum þjóna þeir? Hvers vegna telja íslenskir ESB-sinnar að stjórnmálamenn sem njóta takmarkaðs trausts í eigin landi muni geta sannfært Íslendinga um að fullveldi þeirra sé best komið í höndum Brussel? Þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi á ekki að ráðast af heimsóknum erlendra ESB-ráðherra, hversu vel sem þær kunna að vera sviðsettar. Hún á að ráðast af hagsmunum Íslands, stjórnarskrá lýðveldisins og rétti þjóðarinnar til að ráða eigin málum. Segjum skýrt NEI þ. 29. ágúst og stöndum vörð um Ísland. Höfundur er læknir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar