Formúla 1

Ní­tján ára með at­hygli heims­pressunnar: „Ekki lengur bara undra­barn“

Aron Guðmundsson skrifar
Fimmti sigur Antonelli í röð í Formúlu 1 mótaröðinni, sá fimmti á ferlinum
Fimmti sigur Antonelli í röð í Formúlu 1 mótaröðinni, sá fimmti á ferlinum Vísir/Getty

Yfir­burðir ítalska ungstirnisins Kimi Antonelli, ökuþórs For­múlu 1 liðs Mercedes, halda áfram í mótaröðinni. Í stærsta íþrótta­miðli Ítalíu er hann krýndur nýr konungur yfir Monte Car­lo og í spænska stór­blaðinu Mar­ca segir að Kimi sé ekki lengur bara ungstirni, heldur eitt­hvað miklu stærra. 

Sigur Antonelli í Mónakó kappakstrinum í gær var hans fimmti á ferlinum og sá fimmti í röð. Engum öðrum ökuþór í sögu Formúlu 1 hefur tekist að vinna sínar fyrstu fimm keppnir í Formúlu 1 allar í röð. Enn fremur er hans yngsti sigurvegari Mónakó kappakstursins frá upphafi Formúlu 1 mótaraðarinnar.

En það er ekki bara sú staðreynd að Antonelli hafi unnið Mónakókappaksturinn, heldur það með hversu miklum yfirburðum hann gerði það, sem er farið að láta fólk taka hann alvarlega.  

Þegar að sex keppnishelgar eru yfirstaðnar á Formúlu 1 tímabilinu er það Antonelli sem trónir á toppi stigakeppni ökuþóra með 156 stig og 66 stiga forskot á Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari sem vermir annað sætið. 

„Nýji konungur Monte Carlo“

Nítján ára gamall hefur Antonelli fangað athygli heimsbyggðarinnar. Hvergi er athyglin hins vegar meiri og ástríðufylli en í heimalandi hans, Ítalíu. 

Það fékk Antonelli ekkert stöðvað í Mónakó um nýliðna helgiVísir/Getty

„Nýji konungur Monte Carlo,“ segir í frét La Gazetta dello Sport um afrek Antonelli og á sama tíma biður liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff, ítölsku þjóðina að reyna eftir fremsta merki að halda sér á jörðinni þrátt fyrir frábæra takta Antonelli. 

„Þegar að hjálmurinn fór á fór Ítalinn ungi yfir í heim sem var algjörlega í hans eigu,“ segir í frétt La Gazetta dello Sport um sigur Antonelli. 

Spænska stórblaðið Marca sparar þá ekki stóru orðin í garð Antonelli. 

„Ítalinn er ekki lengur bara undrabarn í hraðasta bílnum á ráslínunni. Hann er að verða eitthvað miklu meira og stærra.“

Antonelli með liðsstjóra og framkvæmdastjóra Formúlu 1 liðs Mercedes, Toto Wolff. Vísir/Getty

Sigur Antonelli sé högg fyrir aðra ökuþóra.

„Hann vann ekki bara kappaksturinn. Heldur náði þungu sálfræðilegu höggi á keppinauta sína.“

The Guardian segir frammistöðu Antonelli vera á gæðastigi heimsmeistara. Þetta gæti verið fyrsti sigur Antonelli í Mónakó af mörgum. 

Formúlu 1 keppnistímabilið heldur áfram um komandi helgi þegar að Katalóníu kappaksturinn fer fram á Spáni. Sýn Sport Viaplay er heimili Formúlu 1 á Íslandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×