Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 9. júní 2026 13:32 Leiðtogafræðin hafa þróast mikið á síðustu áratugum og fjölmargar kenningar og nálganir hafa verið settar fram til að útskýra hvað gerir einstakling að áhrifaríkum leiðtoga. Þrátt fyrir að fræðimenn leggi mismunandi áherslur á einkenni, hegðun eða aðstæður leiðtoga, sýna rannsóknir að ákveðnir eiginleikar birtast síendurtekið hjá þeim leiðtogum sem ná góðum árangri og njóta trausts þeirra sem þeir leiða. Einn mikilvægasti eiginleiki góðs leiðtoga er heiðarleiki og trúverðugleiki. Leiðtogar sem starfa af heilindum og samræmi er milli orða og athafna skapa traust innan hópsins. Traust er nefnilega grundvallarforsenda árangursríkrar forystu þar sem starfsfólk þarf að geta treyst því að leiðtoginn standi við skuldbindingar sínar og taki ákvarðanir af sanngirni. Rannsóknir sýna að heiðarleiki er sá eiginleiki sem starfsfólk nefnir oftast þegar spurt er um mikilvægustu einkenni leiðtoga. Framtíðarsýn og hæfni til að miðla henni er annar lykilþáttur í árangursríkri forystu. Góðir leiðtogar hafa skýra sýn á markmið og stefnu fyrirtækja og stofnanna og geta miðlað þeirri sýn á þann hátt að aðrir skilji hana og vilji taka þátt í að ná henni fram. Leiðtogar í breytinga- og umbótaferli byggja árangur sinn meðal annars á hæfni til að hvetja fólk til að horfa út fyrir eigin hagsmuni og vinna að sameiginlegri framtíðarsýn. Jafnframt skiptir miklu máli að leiðtogar búi yfir hæfni til að byggja upp tengsl og sýna samkennd. Mannleg samskipti eru kjarninn í öllu leiðtogastarfi og því þurfa leiðtogar að geta hlustað af athygli, sýnt skilning og tekið mið af sjónarmiðum annarra. Oft er bent á að tilfinningagreind sé einn mikilvægasti þátturinn í árangursríkri forystu. Leiðtogar sem hafa góða sjálfsvitund, sjálfstjórn og félagsfærni eiga auðveldara með að mynda traust tengsl og stuðla að jákvæðu starfsumhverfi. Ákvarðanataka og ábyrgð eru einnig meðal mikilvægustu eiginleika leiðtoga. Í starfi stjórnenda koma reglulega upp aðstæður þar sem taka þarf erfiðar ákvarðanir á grundvelli takmarkaðra upplýsinga. Árangursríkir leiðtogar forðast ekki slíka ákvarðanatökur heldur taka ábyrgð á þeim og afleiðingum þeirra. Bent er á að hæfni til að taka upplýstar ákvarðanir og bera ábyrgð á framkvæmd þeirra sé grundvallaratriði í því að skapa stöðugleika og trúverðugleika á vinnustöðum. Loks er sveigjanleiki og hæfni til að læra sífellt mikilvægari eiginleiki í síbreytilegu samfélagi. Tækniframfarir, breytingar á vinnumarkaði og auknar kröfur um aðlögunarhæfni gera það að verkum að leiðtogar þurfa stöðugt að þróa þekkingu sína og endurmeta eigin starfshætti. Þeir leiðtogar sem ná bestum árangri til lengri tíma eru þeir sem geta lært af reynslu sinni, aðlagast breyttum aðstæðum og nýtt nýja þekkingu til að efla vinnustaðinn. Þótt ekki sé til ein algild uppskrift að góðri forystu benda rannsóknir til þess að heiðarleiki, framtíðarsýn, samkennd, ábyrg ákvarðanataka og sveigjanleiki séu meðal mikilvægustu eiginleika árangursríkra leiðtoga. Þessir eiginleikar stuðla að trausti, samvinnu og árangri og skapa forsendur fyrir því að leiðtogar geti leitt einstaklinga og vinnustaði í gegnum bæði áskoranir og tækifæri. Það er því til mikils að vinna að vanda valið við ráðningu stjórnenda og að þeir þekki vel til fræðanna sem leiðtogun og stjórnun byggir á og tileinki sér þau. Því eftir höfðinu dansa jú limirnir. Höfundur er stjórnandi til 20 ára. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar