Viðskipti innlent

Til­lögur ráð­herra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða

Kjartan Kjartansson skrifar
Fjármálaáætlun sem Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, mælir fyrir er sögð fela í sér hærri skattheimtu af fjármálafyrirtækjum sem leiði til þess að virði þeirra rýrni um fjögur prósent á næstu fimm árum.
Fjármálaáætlun sem Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, mælir fyrir er sögð fela í sér hærri skattheimtu af fjármálafyrirtækjum sem leiði til þess að virði þeirra rýrni um fjögur prósent á næstu fimm árum. Vísir/Ívar Fannar

Skattahækkanir á fjármálafyrirtæki sem reiknað er með í fjármálaáætlun næstu fimm ára er sögð geta rýrt virði fjögurra banka á Íslandi um tæpa 45 milljarða króna. Hlutur ríkisins í bönkunum gæti lækkað um sautján milljarða en breytingarnar eigi að skila sex milljörðum í auknar skatttekjur.

Morgunblaðið vísar í greiningu  IFS ráðgjafar um aukna skattheimtu á fjármálafyrirtæki sem sé boðuð í fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031 sem sé á dagskrá þingfundar í dag.

Greiningin gengur út frá þeirri forsendu að bankaskattur verði reiknaður út frá 0,269 prósentum af bókfærðum skuldum fjármálafyrirtækja í stað 0,145 prósenta áður.

Við það telur ráðgjafarfyrirtækið að virði stóru bankanna þriggja auk Kviku lækkaði í kringum fjögur prósent. Landsbankinn lækkaði um 17,4 milljarða króna, Íslandsbanka um 12,4 milljarða, Arion banka um 12,4 milljarða og Kviku um 2,6 milljarða króna, samtals um 44,9 milljarða.

Við þetta rýrnaði virði hluta ríkisins í bönkunum um sautján milljarða og lífeyrissjóðanna um þrettán milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×