Golf

At­hyglin mun meiri en Gunn­laugur með báða fætur á jörðinni

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni hefur verið að gera frábæra hluti upp á síðkastið og framundan er fyrsta risamót hans
Gunnlaugur Árni hefur verið að gera frábæra hluti upp á síðkastið og framundan er fyrsta risamót hans Vísir/Getty

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni.

„Þetta er spennandi vika fyrir okkur báða hvað það varðar að fá í fyrsta sinn raun­veru­lega reynslu af svona risamóti saman,“ Mark Haastrup, umboðsmaður Gunnlaugs Árna við Vísi. 

Á fimmtudaginn kemur hefur hinn tvítugi Gunnlaugur Árni leik á U.S. Open, einu af fjórum risamótum ársins í golfheiminum. Þar með verður hann fyrsti íslenski kylfingurinn til þessa til að leika á risamótinu. 

„Ég fæ að sjá hvernig Gunn­laugur æfir, hvernig hann ber sig að við þessar nýju aðstæður, hvernig teymið hans starfar, sam­skiptin við fjöl­skylduna og allt sem þessu fylgir. Gunn­laugur Árni fær þá líka að sjá hvernig ég starfa þegar ég er á at­vinnu­manna móti. Ég verð til staðar fyrir hann og reyni mitt besta til að gera þessa stóru og nýju reynslu fyrir hann aðeins auðveldari og af­slappaðri.“

Afslappaður en samt spenntur

Gunnlaugur Árni hefur verið að gera afar gott mót frá því að hann byrjaði að reyna fyrir sér í bandaríska háskólagolfinu með liði LSU. Hann er á meðal bestu áhugakylfinga í heimi og verður gaman að sjá hvernig honum gengur á meðal allra bestu kylfinga í heimi.

Mark segir mikla vinnu fyrir mótið nú fara fram á bakvið tjöldin enda sé margt sem þarf að skipuleggja og sjá til þess að sé í lagi þegar að risamót er á döfinni.

„Það fylgir þessu fjölmiðla­at­hygli, við­skipta­leg at­hygli og það fer mikið af skipu­lags­vinnu fram á bak við tjöldin. Þetta er allt nýtt fyrir Gunn­laug Árna og það er virki­lega spennandi fyrir mig að fá að vera hluti af ein­hverju svona sér­stöku fyrir hann í fyrsta sinn.

Svona hlutir verða oft að venju, sama hversu sér­stakir þeir eru. Þess vegna er svo gaman að sjá Gunn­laug Árna upp­lifa þetta af fullu hjarta í fyrsta sinn, njóta þess, brosa, vera af­slappaðan en jafn­framt svolítið spenntan. Hann mun muna eftir þessari viku mjög lengi.“

Njóta og telja höggin eftir hverja umferð

Gunnlaugur Árni vilji að sjálfsögðu standa sig vel á U.S. Open en verði að njóta augnabliksins.

„Núna snýst þetta um að taka þetta allt inn, njóta augna­bliksins og undir­búa sig vel. Svo sjáum við bara hvernig mótið þróast. Enginn getur þvingað fram góðan árangur, sama hversu mikið hann vill það. Það eina sem skiptir máli er að undir­búa sig vel, reyna að keppa af fullum krafti og síðan telja höggin eftir hverja um­ferð og sjá hvar maður endar. Og læra af reynslunni.“

Athyglin á Gunnlaugi Árna nú sé umtalsvert meiri en áður. 

„Já, það er klár­lega meiri at­hygli núna, bæði frá fjölmiðlum og á við­skipta­legum vett­vangi. Það er ein­fald­lega hluti af þessu öllu saman og hluti af því að vera ein­stak­lega hæfi­leikaríkur kylfingur. Mér sýnist Árni taka þessu öllu mjög vel og vera með báða fætur á jörðinni.“

Gunnlaugur Árni hefur vakið athygli fyrir afar þroskaða nálgun þegar kemur að golfíþróttinni og stóíska ró. Mark segir það mikla ánægju að starfa með Íslendingnum unga.

„Hann er auðvitað gríðar­lega hæfi­leikaríkur og einn besti áhuga­kylfingur heims, en hann er líka ein­stak­lega geðþekkur og góður drengur. Það er ánægju­legt að vera hluti af teyminu hans. Ég hlakka mjög til þessarar viku og til að sjá hann læra af reynslunni og taka þann lær­dóm með sér inn í framtíðina.“

Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Open á fimmtudaginn næstkomandi. Mótið verður sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×