Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar 19. júní 2026 07:00 Niðurstöður könnunar sem Maskína framkvæmdi fyrir Lífsvirðingu í mars 2026 sýna skýran stuðning almennings við dánaraðstoð á Íslandi. Alls segjast 73,3% hlynnt því að einstaklingar geti fengið dánaraðstoð við ákveðnar aðstæður. Niðurstöðurnar sýna þó líka að fólk vill að slík löggjöf verði útfærð af mikilli varfærni. Áhyggjur fólks snúa einkum að því hvernig tryggja megi að dánaraðstoð verði aðeins veitt á grundvelli vel ígrundaðrar, sjálfviljugrar og upplýstrar óskar einstaklingsins og að fólk í viðkvæmri stöðu njóti fullrar verndar. Vernd fólks í viðkvæmri stöðu Áhyggjur þeirra sem eru andvíg dánaraðstoð, eða 9%, snúa einkum að hættu á misnotkun (61,7%) og því að fólk í viðkvæmri stöðu, til dæmis vegna öldrunar, fötlunar eða félagslegrar einangrunar, gæti fundið fyrir beinum eða óbeinum þrýstingi (53,4%). Beinn þrýstingur getur komið frá öðrum, svo sem aðstandendum. Óbeinn þrýstingur getur falist í aðstæðum sem hafa áhrif á sjálfsmynd og ákvarðanatöku fólks, svo sem einmanaleika, skorti á stuðningi, ótta við að vera byrði eða upplifun af því að lífið hafi misst gildi í augum annarra. Þessar áhyggjur ber að taka alvarlega. Einmitt þess vegna skiptir máli að skoða hvernig reynt hefur verið að mæta þeim í löndum þar sem dánaraðstoð er heimiluð. Almennt er krafist ítarlegs mats, þar sem fleiri en einn læknir kemur að málinu. Meðal annars er metið hvort ósk einstaklingsins sé sjálfviljug, upplýst og stöðug yfir tíma. Í sumum tilvikum er einnig óskað eftir mati á geðheilsu eða ákvörðunarfærni. Einstaklingur þarf jafnframt að hafa vitrænt hæfi til að taka ákvörðunina og getur hætt við ferlið hvenær sem er. Skýr skilyrði og afmörkun Um helmingur þeirra sem eru andvíg dánaraðstoð, eða 50,6%, hefur áhyggjur af því að skilyrði geti víkkað með tímanum. Þótt dánaraðstoð væri í upphafi aðeins heimil fólki með ólæknandi sjúkdóm á lokastigi og óbærilegar þjáningar, óttast sumir að löggjöfin gæti síðar náð til fólks með langvarandi en ekki lífshættulega sjúkdóma, eða jafnvel fólks með alvarlegan geðrænan vanda. Þessar áhyggjur undirstrika mikilvægi þess að afmörkun laganna sé skýr frá upphafi. Það þarf að liggja ljóst fyrir hverjir geta óskað eftir dánaraðstoð, við hvaða aðstæður, hvaða matsferli þarf að fara fram og hvaða skilyrði verða að vera uppfyllt. Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að reynsla annarra landa bendir til þess að breytingar á löggjöf gerist ekki sjálfkrafa. Þar sem skilyrði hafa breyst hefur það almennt gerst að undangenginni opinni umræðu, pólitískri ákvörðun og formlegri lagasetningu. Mörk færast ekki af sjálfu sér; þau færast aðeins ef samfélagið og löggjafinn taka meðvitaða ákvörðun um það. Gagnsæi og virkt eftirlit Rúmlega fimmtungur þeirra sem eru andvíg dánaraðstoð, eða 23,1%, óttast einnig að lögleiðing geti grafið undan trausti milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Þeim áhyggjum verður helst mætt með gagnsæi, skýrum verkferlum og virku eftirliti. Í löndum þar sem dánaraðstoð er heimiluð er almennt skylt að skrá hvert tilvik og tilkynna það til óháðrar eftirlitsnefndar. Slík nefnd fer yfir hvort skilyrðum laganna hafi verið fullnægt og hvort rétt verklag hafi verið viðhaft. Ef frávik koma í ljós taka við skýr viðbragðsferli, sem geta falið í sér frekari rannsókn og, í alvarlegum tilvikum, lagalegar afleiðingar. Víða eru einnig birtar opinberar ársskýrslur um framkvæmdina. Þar koma fram upplýsingar um fjölda umsókna, fjölda samþykktra tilvika, ástæður beiðna og hvernig eftirliti hefur verið háttað. Slíkt gagnsæi gerir almenningi kleift að fylgjast með þróuninni og leggja mat á hvort kerfið virki eins og til var ætlast. Hvað má læra af reynslu annarra? Íslendingar þurfa ekki að byrja á auðu blaði. Reynsla annarra landa sýnir að hægt er að setja dánaraðstoð í skýran og vandaðan lagaramma. Hún minnir einnig á að þær áhyggjur sem koma fram hér á landi eru ekki séríslenskar. Mikilvægasti lærdómurinn er að skýr skilyrði, faglegt mat, virk skráning og óháð eftirlit þurfa að vera innbyggð í kerfið frá upphafi. Reynslan hjálpar okkur að spyrja réttu spurninganna: Hver á að meta beiðnir? Hvaða skilyrði eiga að gilda? Hvernig verndum við fólk í viðkvæmri stöðu? Og hvernig tryggjum við að ferlið sé gagnsætt, faglegt og endurskoðanlegt? Sjálfræði og vernd Umræðan um dánaraðstoð er oft sett fram eins og hún snúist um val milli tveggja gilda: sjálfræðis annars vegar og verndar hins vegar. En þessi gildi þurfa ekki að útiloka hvort annað. Ábyrg löggjöf um dánaraðstoð verður að byggjast á hvoru tveggja. Niðurstöður könnunarinnar sýna að mikill meirihluti almennings styður dánaraðstoð við ákveðnar aðstæður. Þær sýna líka að fólk vill að farið sé varlega, að skilyrðin séu skýr og að vernd þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu sé tryggð. Með skýrum skilyrðum, öflugu eftirliti, faglegu mati og opinni umræðu er hægt að móta lagaramma sem virðir vilja einstaklingsins við lífslok, án þess að slakað sé á skyldu samfélagsins til að vernda þau sem kunna að vera berskjölduð. Höfundur er formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun Halldór 15.08.2026 Halldór Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Sjá meira
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun