Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 18. júní 2026 10:32 Það er mikið rætt um matvælaöryggi um þessar mundir og það er eðlilegt í ljósi stöðu mála síðustu vikur og mánuði. Óvissa í alþjóðamálum, meðal annars í Mið-Austurlöndum, brothættar aðfangakeðjur, loftslagsbreytingar og sveiflur á mörkuðum minna okkur á að það er ekki sjálfgefið að lítil eyþjóð geti treyst því að allt sem hún þarf komi ávallt að utan Matvælaöryggi snýst þó ekki aðeins um vöruflutninga, tolla, milliríkjasamninga eða stuðningskerfi. Það snýst umfram allt um fólk. Þess vegna þurfum við að spyrja okkur að eftirfarandi: Hver mun framleiða matvælin okkar eftir 10, 20 eða 30 ár og hvernig tryggjum við að til staðar verði fólk, þekking og jarðnæði til að standa undir matvælaframleiðslu þjóðarinnar? Vandinn er viðurkenndur af stjórnvöldum Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2027-2031, sem samþykkt var 15. júní sl., er réttilega viðurkennt að nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði hafi reynst erfið. Þar er líka talað um að framtíð landbúnaðar byggist á traustum rekstrargrundvelli, verðmætasköpun, matvælaöryggi og sterkum stoðum til framtíðar. Það er gott að þessi orð komi fyrir í áætluninni. Þetta hljómar allt saman skynsamlega. Vandinn er hins vegar sá að orð eru til lítils ef þeim fylgja ekki raunverulegar aðgerðir sem stuðli að því að ungt fólk komist inn í greinina. Leiðin að rekstri er of erfið Ungur bóndi sem vill taka við búi eða hefja rekstur stendur frammi fyrir miklum stofnkostnaði, háum vöxtum, mikilli skuldsetningu, takmörkuðu aðgengi að fjármagni og erfiðu aðgengi að jarðnæði og fasteignum. Þetta er einfaldlega raunveruleikinn sem blasir við ungu fólki þegar það veltir fyrir sér hvort það eigi sér framtíð í landbúnaði. Í þessu samhengi er rétt að horfa til nýsamþykktrar fjármálaáætlunar 2027-31. Hún á að vera tæki til að horfa fram á veginn á öllum málefnasviðum, þ.m.t. landbúnaði og matvælaframleiðslu. Hún á ekki aðeins að telja upp fjárheimildir innan málefnasviða heldur sýna hvernig stjórnvöld ætla að mæta þeim áskorunum sem þau sjálf fjalla um. Þegar fjallað er um nýliðun, kynslóðaskipti og afkomuvanda bænda ætti því að sjást skýr fjárhagsleg brú frá augljósum vanda greinarinnar yfir í lausnir eða a.m.k. tillögur eða hugmyndir að lausnum. Hér vantar augljóslega meira upp á. Við sjáum einfaldlega enga stefnu eða aðgerðir stjórnvalda sem tengjast skuldum ungra bænda, fyrstu fjárfestingum, aðgang að landi eða það hvernig ný kynslóð á að komast inn í grein sem krefst mikils fjármagns frá fyrsta degi. Afleiðingarnar koma síðar Ef ekki er hugað að neinum aðgerðum, veikist landbúnaðurinn smám saman, hægt og bítandi. Þá fækkar fjölskyldubúum. Framleiðsla færist á færri hendur. Þekking tapast. Störf hverfa. Þjónusta í dreifðum byggðum veikist. Og þjóðin verður háðari innflutningi á tímum þar sem við ættum einmitt að styrkja eigin viðnámsþrótt og seiglu. Það eru allar aðrar þjóðir að gera, jafnvel þær sem eru í Evrópusambandinu. Þess vegna er nýliðun í landbúnaði mikilvægt byggðamál. Hún er atvinnumál. Hún er matvælaöryggismál. Og síðast en ekki síst er nýliðun þjóðaröryggismál. Nýjar rætur Hér þarf að hugsa stærra og skýrar. Við verðum að auðvelda ungu fólki og frumkvöðlum í landbúnaði að festa rætur í orðsins fyllstu merkingu, til dæmis með stuðningi við fyrstu kaup á landi, bújörð eða nauðsynlegum fasteignum til rekstrar. Slíkt úrræði þyrfti ekki að vera risavaxið eða flókið til að skipta máli. Sérstakt tilraunaátak í því ljósi væri lítið í samhengi ríkisfjármála, en gæti verið stórt skref fyrir ungt fólk sem vill hefja búskap. Það væri tæknilega séð fjárveiting á næsta ári. En efnislega væri það fjárfesting í næstu kynslóð bænda, byggðafestu og fæðuöryggi. Rætur vaxa ekki í tómarúmi Rætur vaxa ekki í tómarúmi. Þær þurfa frjóan jarðveg, skjól og tíma. Sama gildir um unga bændur. Ef við viljum að ný kynslóð taki við íslenskum landbúnaði verðum við að skapa aðstæður þar sem fólk getur fest rætur, byggt upp lífsviðurværi og blómstrað svo tryggt verði að matvæli verði áfram framleidd á Íslandi eftir 20 ár. Höfundur er bóndi og alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar