Golf

Beint: Gunn­laugur Árni á US Open

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson með boðið sitt um að mæta á Opna bandaríska, fyrstur íslenskra karlkylfinga.
Gunnlaugur Árni Sveinsson með boðið sitt um að mæta á Opna bandaríska, fyrstur íslenskra karlkylfinga. @lsusports

Gunnlaugur Árni Sveinsson spilar í dag fyrsta hring íslensks karlkylfings á opna bandaríska risamótinu en mótið fer að þessu sinni fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York. Vísir mun fylgjast með þessum sögulega golfhring þar sem þessi efnilegi íslenski kylfingur reynir sig meðal þeirra bestu í heimi.

Gunnlaugur Árni Sveinsson spilar í dag fyrsta hring íslensks karlkylfings á opna bandaríska risamótinu en mótið fer að þessu sinni fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York.

Vísir mun fylgjast með þessum sögulega golfhring þar sem þessi efnilegi íslenski kylfingur reynir sig meðal þeirra bestu í heimi.

Rástími Gunnlaugs Árna átti að vera klukkan 18:20 en honum seinkaði um tvo tíma, til 20:20, vegna þokunnar á vellinum fyrr í dag.

Það má fylgjast með gangi mála á þessum sögulega degi hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×