Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 21. júní 2026 10:02 Aðdragandinn Árið 2011 voru lögð drög að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland. Það var gert rétt eftir hrun þegar allir voru í áfalli eftir hrunið. Til verksins voru aðallega valdir þjóðþekkt fólk og þekktir aktívistar og var vinnuheiti hópsins Stjórnlagaráð. Þarna komu fram margar góðar tillögur að breytingu á stjórnarskránni og sumar nauðsynlegar, eins og um auðlindir í þjóðareign sem einungis megi ráðstafa tímabundið og í mannréttindakafla er bætt við ákvæðum um náttúru Íslands, menningarverðmæti, dýravernd, bann við herskyldu og margt fleira, sem sagt margt þarft og gott. Sitthvað þyrfti hins vegar vafalítið að útfæra nánar eins og hvað varðar tímabundna ráðstöfum auðlinda þjóðarinnar. Kosningarkerfið Þarna voru líka hugmyndir um breytingu á kosningakerfinu til þess að heimila persónukjör. Þessu ákvæði var ég hrifin af þar til ungur maður skýrði út fyrir mér hvers vegna þetta gengi ekki upp. Þetta yrðu vinsældakosningar ekki málefnalegar, það yrðu svo margir í framboði að fólk kysi þekkt andlit frekar en málefni sem þau stæðu fyrir og alþingi yrði fyrst fyrir alvöru að leikhúsi fáránleikans. Þetta sannast best á því hverjir voru kosnir í Stjórnlagaráð, sjálfsagt allt hið besta fólk en kannski frekar kosin því fólk kannaðist við það en vegna þess að þau væru hæfust til verksins. Hópurinn sem setti þetta inn var sönnun þess að þetta virkar ekki. Beinu lýðræði með þjóðaratkvæðagreiðslum er lika gert hátt undir höfði, það er fínt á pappír en kostnaðarsamt í framkvæmd og tekur langan tíma. Við kjósum jú fulltrúa á þing til að sýsla um þetta og borgum þeim háar upphæðir fyrir. Þjóðaratkvæðagreiðsla á engu að síður rétt á sér og er naðuðsynleg um mikilvæg mál.. Hvað er nýja stjórnarskráin? Þetta heyrist æ oftar og er jafnvel málað stórum stöfum á veggi. Ég sótti opinn fund á Selfossi síðastliðið sumar um nýju stjórnarskrána sem Suðurdeild Sósíalista stóð fyrir því ég var forvitin líka. Þar taldi sú sem hafði framsögu upp allt þetta fína sem í henni er og allir urðu hissa á að það væri ekki búið að samþykkja þetta fyrir löngu og urðu umræður á eftir, ja, bara nokkuð góðar. Daginn eftir urðu heitar umræður um þetta á Facebook-hópi, þar gengu sumir fram með miklu offorsi, það mátti ekki fyrir nokkurn mun samþykkja þessa stjórnarskrá, það væri sko ekkert gott í henni, já, þetta varð nokkuð heiftúðugt á köflum. En hvers vegna, ég kom alveg af fjöllum... 111. gr. Framsal ríkisvalds. Hvað eyðilagði fyrir? Jú, það var laumað í hana ákvæðinu sem leyfir ríkisstjórninni að framselja ríkisvald, svo heimilt yrði að gera þjóðréttarsamninga sem fela í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að! Ef þetta hefði gengið í gegn hefðum við ekki þessa vörn að það þurfi tvö þjóðþing til að breyta stjórnarskránni áður en ESB-samningurinn gæti verið samþykktur og ríkisstjórnin sem nú situr ætti hægara með að koma þessu í gegn á þessu kjörtímabili, það er ef það næðist að klára alla pakkana og uppfylla þær kröfur sem við þurfum að uppfylla svo hægt væri að loka þeim, sem er mjög ósennilegt, svona ferli hefur tekið mun lengri tíma hjá öðrum ríkjum og ekki viljum við kasta til höndunum í svo mikilvægu máli.Ekki minntist sú ágæta kona sem var til framsögu á fundinum neitt á þetta, ég vissi þetta ekki. Vissuð þið að þetta ákvæði væri í nýju fínu stjórnarskránni okkar sem var eytt miklum tíma og peningum í? En í ljósi þessarar vitneskju skoðum hverjir voru í Stjórnlagaráði og munum að þetta var gert á þeim tíma sem það átti að koma okkur í ESB með góðu eða illu. Öllum góðu málunum var fórnað fyrir þetta umdeilda ákvæði sem var laumað í nýju stjórnarskrána. Eftir að mér var bent á að þetta væri þarna hef ég verið á móti því að hún verði samþykkt og er mjög feginn núna þegar ESB-æðið er komið af stað aftur að það var aldrei gert. Um þetta myndi ég vilja hafa þjóðaratkvæðagreiðslu. Á þetta ákvæði að vera í stjórnarskránni okkar? Ég myndi kjósa NEI. Höfundur er félagi í Til Vinstri við ESB. Heimildir: Stjórnlagaráð https://www.stjornlagarad.is/fulltruar/index.html Frumvarp Stjórnlagaráðs 2011 https://stjornlagarad.is/starfid/frumvarp/ Evrópuvefurinn um stjórnarskrána Pétur Dam Leifsson dósent á sviði þjóðarréttar við Lagadeild Háskóla Íslands Útgáfudagur, 6.9.2011 https://www.evropuvefur.is/svar.php?id=60093 Hvað er nýja stjórnarskráin? Frétt Sigríðar Hagalín Björnsdóttur á RÚV þann 17. október 2020 https://www.ruv.is/frettir/innlent/2020-10-17-hvad-er-nyja-stjornarskrain Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar