Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar 21. júní 2026 17:03 Ykkur að segja var ég mjög mótfallin því að halda útitónleika á Þingvöllum. Þó vissulega hafi þing verið haldin þar fyrr á öldum, menn verið dæmdir og konum þar drekkt. Þingvellir eru nàttúrulegt undur í raun þar sem Evrópu og Ameríku flekarnir rekast á. Nú á dögum má reyndar segja að þessir flekar rekist verulega á í samskiptum þjóða og ógni jafnvel öryggi okkar sem byggjum land á eyjunni grænu í Atlandshafi. Hef alltaf verið mikill Stuðmanna aðdáandi eða allt frá mínum menntaskóla árum þegar Popplag í G dúr sló í gegn og Stuðmenn spiluðu það á ráðhústorginu á Akureyri 17. júní fyrir bara 39 árum. Má það vera ? Við nýstúdentar MA vorið 1987 fórum í ógleymanlega útilegu í Vaglaskógi og þá var sungið Vor í Vaglaskógi og allir skemmtu sér fallega. Nú á Jónsmessu þegar dagur er nánast allan sólarhringinn allt er grænt og vorið er ungt er auðvitað algjör snilld að efna til útitónleika, en á Þingvöllum er það í lagi ? Ég hafði áhyggjur af umferð, umgengni og vanhelgun á þessum einstaka stað. En skipulagið og undirbúningur virðist hafa verið til fyrirmyndar. Ekkert rusl, enginn handtekinn og allir komust heim. Snilldin er líka sú að leyfa þeim sem ekki komust á viðburðinn að horfa. Sumir voru að vinna og aðrir áttu ekki heimangengt, en gátu horft heima í sófanum og fundið íslensku vor stemmninguna sem greinilega sveif þarna yfir völlum okkar fyrir þings staðar. Nú þegar ég horfi á þennan viðburð þar sem forseti vor og margt af okkar helsta tónlistarfólki skemmti landanum fæ ég bara kusk í augun. Vissulega sakna ég þeirra Stuðmanna sem ekki eru lengur með í gigginu en örugglega með í andanum. Þegar erlendur kór frá 11 ríkjum sem standa sum í stríði tekur undir á íslensku. Lopapeysu klæddir kórfélagar koma fram með Stuðmönnum og Salka Sól klæðist fjallkonu búningi þegar hún syngur í stað Ragnhildar Gísladóttur, það kemur jú alltaf maður í manns stað. Jakob Frímann stendur í stafni á hljómborðinu og syngur eins og áður, kynnir inn nýtt fólk og stýrir þessu öllu af einstakri fagmennsku. Jakob Frímann þú ert þjóðargersemi og það var í góðu lagi að halda þennan viðburð sem vonandi verður endurtekinn á Þingvöllum. Takk fyrir að fá hugmynd, framkvæma hana og leyfa öllum að njóta með frá Þingvöllum. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tónleikar á Íslandi Tónlist Þingvellir Mest lesið Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Skoðun Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar