Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar Erna Bjarnadóttir skrifar 23. júní 2026 12:32 Formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartozsek, hefur gert matvælaverð og mögulega lækkun þess að umræðuefni við ESB aðild að umtalsefni á sínum samfélagsmiðlum undanfarið. Þar hefur einna hæst borið þá fullyrðingu hans að verð á skyndibitum eins og vefjum af tilteknum veitingastað geti lækkað um 25% gerist Ísland aðili að ESB. Sem áhugamanneskja um matvælaverð til áratuga ákvað ég að ráðast í sjálfstæða rannsókn á þessari fullyrðingu á grundvelli þeirra gagna sem tiltæk væru og ganga þannig skrefi lengra en Pawel og byggja á tölulegum staðreyndum og skoðun á innihaldi í slíkum vefjum. Í þessum tilgangi lagði ég leið mína á veitingastaðinn Saffran við Dalveg mánudagskvöldið 23. júní. Það keypti ég eina hunangshollustuvefju á 2.590 kr. Þjónustan var til fyrirmyndar og vefjan stóðst allar mínar væntingar svo það sé sagt, starfmenn aðstoðuðu við að nota pöntunarviðmótið á staðnum. Þau upplýstu mig aðspurð um að í vefjunni væru 120 g af kjúklingakjöti og það væri kjöt af kjúklingaleggjum sem notað er í vöruna. Þegar vefjan var komin á diskinn minn skoðaði ég innihaldið lauslega. Ég kom ekki auga á að neitt annað hráefni í henni gæti flokkast undir landbúnaðarvörur sem bera tolla. Grænmeti, sósur, hrísgrjón og vefjan sjálf er allt tollalaust í innflutningi en þar innan um voru líka íslenskar afurðir. Það á sannarlega við um VAXA salatið í vefjunni og mjög líklega agúrkuna þó ekki sé unnt að fullyrða það. Það breytir þó engu um að tollar hafa engin áhrif á innkaupsverðið til veitningahússins, í þessu tilviki Saffran. Til að fylla inn í myndina var því aðeins nauðsynlegt að fá hugmynd um hvað kjúklingakjötið í hana gæti kostað í innkaupsverði. Til að gera langa sögu stutta þá gæti innkaupsverð á þessum 120 grömmum legið á bilinu 280 – 290 krónur. Hér er átt við fulleldað beinlaust kjöt af kjúklingaleggjum sem rýrnar um ca. 20% við eldun. Pawel fullyrðir að við ESB – aðild geti verðið lækkað um 25% eða úr 2.590 kr/stk í 1942.50 kr/stk. Mismunurinn 647,50 kr er 2,25 falt það sem bara kjúklingurinn í vefjuna kostar miðað við þessar forsendur. Ef kjúklingakjötið lækkar um 25% sem er enginn getur þó fullyrt einu orði um hvorki til né frá, nemur lækkunin á hráefniskostnaðinum 72 krónum og vefjan lækkar því úr 2.590 kr í 2.518 krónur eða um 2,8%. Er Pawel að gefa í skyn að ESB borgi með kjúklingakjöti í skyndibita við ESB aðild eða hvernig fær hann sína niðurstöðu út? Með öðrum orðum, formaður utanríkismálanefndar ber á borð fyrir alþjóð hreina upplýsingaóreiðu sem flokkur hans sjálfs gumar iðulega af að berjast gegn. Má þetta bara? Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar