Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Lovísa Arnardóttir skrifar 24. júní 2026 13:37 Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra undirrituðu samninginn við Reykjavíkurhöfn. Stjórnarráðið Stjórnvöld leggja samkvæmt nýjum samningi 630 milljónir í nýtt samstarfsverkefni um markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu undirrituðu samninginn, sem er til eins árs, í dag. Í tilkynningu kemur fram að fulltrúar atvinnuvegaráðherra, Íslandsstofu, Samtaka ferðaþjónustunnar og áfangastaðastofa landshlutanna muni skipa verkefnisstjórn um framkvæmd samningsins. Í tilkynningu er vísað til þess að í nýrri aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands komi fram að innan atvinnuvegaráðuneytisins verði unnið að heildarendurskoðun á skipulagi, hlutverkaskiptingu og samningum um opinbera markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Markmiðið með því verði að skýra ábyrgð, auka samhæfingu og bæta nýtingu fjármuna. Niðurstaða þeirrar vinnu verður samkvæmt tilkynningu kynnt næsta vetur sem fyrsti liður þess að gera langtímaáætlun fyrir viðvarandi neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. „Ferðaþjónustan hefur lengi kallað eftir því að farið sé í viðvarandi markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað í stað þess að vera í tímabundnum markaðsátökum. Þessi samningur er fyrsta skrefið á þeirri vegferð,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í tilkynningu. Hún segir það skipta miklu máli fyrir íslenska ferðaþjónustu að gera þetta með þessum hætti. „Þetta styður auðvitað við þá öflugu markaðssetningu sem ferðaþjónustufyrirtækin sjálf standa fyrir. Markmiðið með viðvarandi markaðssetningu er ekki síst að draga úr árstíðasveiflum í íslenskri ferðaþjónustu og stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið.“ Samkeppnin veruleg Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir útflutningstekjur af ferðaþjónustu skipta miklu máli fyrir íslenskt hagkerfi. „Samkeppnin um ferðamenn hefur sjaldan verið meiri en í dag. Við viljum hafa áhrif á þróun greinarinnar, sækja fram gagnvart réttum markhópum á okkar verðmætustu mörkuðum og vinna gegn árstíðasveiflu. Þannig náum við að hámarka þann ávinning sem íslenskt samfélag í heild hefur af þessari mikilvægu atvinnugrein,“ segir Pétur Þ. Óskarsson.
Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira