Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar 26. júní 2026 08:30 Í umræðunni um hvali er oft talað eins og verðmætin verði fyrst til þegar dýrin eru veidd. En lifandi hvalir skapa líka verðmæti. Í kringum þá hefur byggst upp öflug atvinnugrein sem skapar störf, gjaldeyri og líf við hafnir víða um land. Hvalaskoðun er nefnilega líka vertíð. Á sumrin lifna hafnir landsins við. Gestir safnast saman á bryggjum, bátar leggja úr höfn, náttúrufræðingar undirbúa frásagnir, skipstjórar lesa í sjólag og veður, vélstjórar og hásetar sjá til þess að allt gangi upp og starfsfólk í landi heldur utan um bókanir, móttöku, sölu og þjónustu. Í kringum þetta skapast störf, umferð og tekjur, ekki aðeins hjá hvalaskoðunarfyrirtækjunum sjálfum heldur líka hjá höfnum, verkstæðum, birgjum, veitingastöðum, verslunum, gististöðum og fjölmörgum öðrum. Þetta skiptir máli fyrir Reykjavík, en ekki síður fyrir landsbyggðina. Á mörgum stöðum eru hafnirnar hjarta samfélagsins og ferðaþjónustan mikilvægur hluti af atvinnulífinu. Þegar gestir koma til að sjá hvali kaupa þeir ekki aðeins eina bátsferð. Þeir gista, borða, versla, ferðast, greiða skatta og gjöld og skilja eftir sig verðmæti sem dreifast víða. Á hverju ári fara yfir 400 þúsund gestir í hvalaskoðun á Íslandi. Það er ekki lítil aukagrein eða rómantísk hliðargrein ferðaþjónustunnar. Þetta er stór, gjaldeyrisskapandi atvinnugrein sem byggir á lifandi náttúru og ábyrgri nýtingu hennar. Munurinn á hvalaskoðun og hvalveiðum er einfaldur: Í hvalaskoðun verða verðmætin til á meðan hvalirnir halda áfram að synda. Sami hvalur getur skapað upplifun, tekjur og störf aftur og aftur, ár eftir ár. Hann getur orðið hluti af frásögn, rannsóknum, fræðslu og minningu sem gestir taka með sér heim. Hann getur laðað fólk til landsins án þess að vera tekinn úr hafinu. Mynd tekin í hvalaskoðunarferð með Eldingu á Faxaflóa í gær. Þess vegna er mikilvægt að við ræðum verðmæti hvala með meiri víðsýni en hingað til. Það er eðlilegt að tala um störf og laun í tengslum við hvalveiðar, en þá verðum við líka að tala um störfin, launin og samfélagslegu áhrifin sem fylgja hvalaskoðun. Þar vinnur fólk líka langa daga yfir sumarmánuðina, sinnir gestum, öryggi, fræðslu og þjónustu og heldur úti starfsemi sem skapar verðmæti langt út fyrir sjálfa bátsferðina. Sú vinna er hluti af íslensku atvinnulífi og sú vertíð er ekki síður raunveruleg. Við þurfum líka að hætta að tala um hvali eins og þeir séu einfaldlega að taka eitthvað frá okkur. Hvalir eru ekki utan við vistkerfið heldur hluti af því. Þeir gegna hlutverki í hafinu, í hringrás næringarefna og í þeirri náttúru sem við byggjum svo stóran hluta ímyndar Íslands á. Lifandi hvalir eru verðmæti, ekki aðeins fyrir ferðaþjónustu heldur fyrir hafið sjálft. Þegar dauð langreyður er dregin í gegnum hvalaskoðunarsvæði birtast tvær ólíkar framtíðarsýnir í sömu myndinni. Önnur byggir á því að drepa dýrið og selja afurðina þegar og ef markaðsaðstæður leyfa. Hin byggir á því að hvalurinn sé áfram í hafinu og skapi verðmæti aftur og aftur, fyrir fyrirtæki, starfsfólk, gesti, byggðarlög, ríkið og náttúruna. Við eigum að spyrja okkur hvar framtíðarverðmætin liggja. Fyrir mér er svarið skýrt: Lifandi hvalir eru auðlind. Og hvalaskoðun er líka vertíð. Höfundur er framkvæmdastjóri Eldingar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hvalir Hvalveiðar Ferðaþjónusta Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar