Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar 26. júní 2026 12:30 Nýlega kom til samráðs aðgerðaáætlun stjórnvalda til verndar líffræðilegrar fjölbreytni. Aðgerðaáætlunin er stutt og hnitmiðuð að sögn höfunda og því fær grasrótin þrjár vikur til þess að skrifa athugasemdir. Náttúruverndarsamtök hafa ekki haft neina aðkomu að mótun aðgerðaráætlunarinnar fyrr en nú og eiga að láta sér nægja þessar þrjár vikur í júní. Ráðherra umhverfis- orku-, og loftslagsmála státar sig iðulega af því að setja fram þessa aðgerðaáætlun, að hafa afgreitt 6 svæði á náttúruminjaskrá og margt annað sem eru vissulega góð mál en blikna í samanburði við lagabreytingar sem sami ráðherra flytur með bros á vör og segist ryðja úr vegi hindrunum til meiri nýtingar. Á sama tíma talar hann um hina vandasömu jafnvægislist milli hagvaxtar og náttúruverndar. Mér hefur þótt málaflokkur náttúruverndar vega létt í þessari umtöluðu jafnvægislist. Á sama tíma og frumvörp eru lögð fram um að ávallt verði að taka tillit til orkunýtingarvilja stjórnvalda við ákvarðanir og hindrunum er rutt úr vegi fáum við í hendurnar aðgerðaáætlun sem hljóma að miklu leyti eins og hálfkláraðar hugsanir. Aðgerðin felur í sér að kortleggja vænlegar leiðir til að… Gerð verði greining á því regluverki sem atvinnulífinu ber að fylgja… Aðgerðin felur í sér að meta umfang… Þróuð verða verkfæri, verklag og dæmi um góðar lausnir til að styðja sveitarfélög… Aðgerðin felur í sér að ákvarða vegvísi fyrir vinnu íslenskra stjórnvalda… Aðgerðin felur í sér að greiða úr óvissu um hvaða svæði á Íslandi geta fallið undir skilgreiningu… Sett verði af stað samráð við að móta tillögur að fyrirkomulagi… Það er vissulega mikilvægt og gott að greina stöðuna og athuga ýmsa físileika áður en farið er í markvissar aðgerðir en eitt og sér er lítið í það varið og alltaf hætta á að slík vinna endi ofan í skúffu. Svo eru til gögn um ýmislegt og til dæmis hefur Hafró nú þegar lagt til að stór svæði suður af Íslandi verði friðuð í hafi. Upplýsingarnar liggja fyrir og lagagrundvöllurinn til staðar í náttúruverndarlögum. Fyrirstaðan er engin. KOMASVO! Þó að einhverjar aðgerðir eins og endurheimt votlendis á ríkisjörðum og aðgerð sem byggir á reglugerð um um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt séu vissulega til góða, þá eiga þær það sameiginlegt að hafa þegar komið fram og eru nú þegar í öðrum áætlunum. Nýlundan í þessari aðgerðaáætlun er þess vegna eins og hver annar geispi og kaffibolli á mánudagsmorgni. Ég velti fyrir mér hvort að stórir hagaðilar myndu sætta sig við álíka fyrirslátt í þeim málaflokkum sem koma þeim beint við. Sett verður af stað samráð við að móta tillögur að fyrirkomulagi að því að auka ferðaþjónustu á Íslandi. Aðgerðin felur í sér að ákvarða vegvísi fyrir vinnu íslenskra stjórnvalda við að bæta ferli við aukna orkuöflun. Ég er viss um að atvinnulífið myndi ekki láta bjóða sér slíkar aðgerðir einar og sér sem einhverskonar loforð um að unnið sé hörðum höndum að því að bæta stöðu þeirra. Einhverra hluta vegna hafa stjórnmálamenn það í sér að halda slíkum aðgerðum um almannahagsmuni eins og náttúruvernd hátt á lofti eins og um gífurlega metnaðarfulla áætlun sé að ræða. Við sjáum vel að svo er ekki og ef þið lesið umsagnir við aðgerðaáætlunina sjáið þið að fagstofnanir okkar eru sammála þessu. Höfundur er formaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður María Þorbjarnardóttir Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar