Verðhækkanirnar vonbrigði Smári Jökull Jónsson skrifar 26. júní 2026 18:50 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda.
Samkvæmt tilkynningu Hagstofunnar í morgun mælist ársverðbólga nú 5,2% en var 5,1% í maí. Er þetta þvert á spár greiningardeilda sem spáð höfðu hjöðnun. Fjármálaráðherra segir hækkun flugfargjalda það eina sem stuðli að hækkun vísitölu. „Eins og þróunin hefur verið í Hormússundi og þróunin hefur verið á olíuverði þá reiknum við líka með að þetta gangi til baka. Við getum sagt að góðu fréttirnar eru að önnur verðbólga er greinilega á niðurleið,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra í viðtali í kvöldfréttum Sýnar. Birgðastaða skýri tafir á lækkun Hærra verð á húsnæði og gistiþjónustu býr einnig að baki hækkuninni. Þá kom fram í tilkynningu ASÍ í morgun að olíuverð hafi ekki lækkað í takt við heimsmarkaðsverð. Daði segir að náið sé fylgst með þróuninni. „Það er hins vegar þannig að það er alltaf einhver eðlileg töf og það verður að taka tillit til þess að þó olíuverð lækki þá þýði það ekki endilega að bensín- og díselverð lækki jafn mikið,“ segir Daði og bætir við að birgðastaða olíufélaganna skýri þetta að hluta. Hagfræðingur ASÍ sagði í viðtali á Vísi að það væru vonbrigði að forsenduákvæði kjarasamninga séu ekki að nást. Daði segir að allir við borðið geri sér grein fyrir sinni ábyrgð. „Mögulegt að ráðast í alls konar aðgerðir“ Óljóst sé hvort markmiðið náist. „Það fer svolítið eftir því hversu snart olíuverð lækkar. Lækki það eins snart á unnu afurðunum eins og hefur verið að gerast á markaðnum núna, þá gæti alveg verið að við værum innan forsendanna en það verður mjög tæpt.“ „Það er auðvitað mögulegt að ráðast í alls konar aðgerðir, Það er skilningur allra við borðið að það hefur almennt verið kaupmáttaraukning á Íslandi, þannig að kjör hafa ekki rýrnað. Það eru þó einhverjir hópar sem standa útaf og aðgerðirnar, ef einhverjar verða, munu þurfa að beinast að þeim,“ segir Daði Már að lokum.
Verðlag Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira