„Mér finnst það bara algjört bull“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 08:32 Albert Brynjar Ingason bað um að fá að segja algjörlega það sem honum finnst um Hermann Hreiðarsson og Chris Brazzell. Vísir/Diego/Valur/Sýn Sport Stúkan ræddi risafréttir gærdagsins í Bestu deild karla í fótbolta þar sem Valsmenn létu Hermann Hreiðarsson fara eftir aðeins þrettán leiki og eftir að hafa vera nýkominn heima á Hlíðarenda með þrjú stig frá Akureyri. Albert Brynjar Ingason bað um að fá að segja algjörlega það sem honum finnst um þessa ákvörðun og fékk það líka. „
En þá að þessum fregnum í dag. Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, látinn fara. Frekar stutt stopp hjá Hermanni á Hlíðarenda. Hvernig svona blasir þetta við þér?“ spurði Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Stúkunnar, sérfræðing sinn Albert Brynjar Ingason. „Má ég segja algjörlega það sem mér finnst um þetta?“ spurði Albert og fékk fullt leyfi til þess. Var alltaf umdeild ráðning „Þetta var alltaf umdeild ráðning og ég setti alveg stórt spurningarmerki við þessa ráðningu. En ef þú ætlar að ráða Hermann Hreiðarsson þá beislar þú hann ekkert niður með Chris Brazzell. Ég hef spilað fyrir Hemma og það var ákveðin geðveiki að spila fyrir Hemma,“ sagði Albert. „Það er bara full ferð og ekkert bull. Það er leiðinlegt að mæta liði sem Hemmi stýrir og hann talaði um það þegar hann tók við Val að það yrði leiðinlegt að mæta þessu Valsliði. Það hefur ekki alveg gengið upp og það er talað um núna þegar hann er látinn fara að þetta sé bara lið hans Hemma. Ég er bara, ég er langt frá því að vera sammála því,“ sagði Albert. Fær ekki að velja mann með sér „Hann er ráðinn en hann fær ekki að velja mann með sér. Brazzell á bara að vera þarna. Hann bara varð að vera þarna. Svo er Hermann rekinn, spilamennskan upp og niður, menn ekki sáttir með ákveðna þætti í leik liðsins. Þá er þetta allt Hermanni að kenna. Mér finnst það bara algjört bull. Af hverju varð þá Brazzell að vera þarna ef Hermann tók allar ákvarðanir og réði öllu,“ spurði Albert. Hann segist hafa hlerað leikmenn fyrr á tímabilinu. „Maður var forvitinn um þetta og það sem maður heyrir er að á taktískum æfingum var alltaf Brazzell sem sá um þetta og þeir voru alveg saman með þetta. Ég kaupi þetta ekki þegar Hermann er látinn fara, þegar spilamennskan er upp og niður, þá er þetta bara Hermanni að kenna. Það stemmir ekki við það að Brazzell átti að vera þarna,“ sagði Albert. Af hverju fær Brazzell allt þetta traust? „Af hverju er Hermann síðan látinn stýra þessum lokaleik ef menn vissu hvað væri að fara að eiga sér stað? Menn vissu líka að Brazzell vildi fara að taka við liðinu. Af hverju? Þá skil ég ekki ef þeir eru búnir að taka þessa ákvörðun fyrir Þórsleikinn, að Hermann sé látinn taka þennan leik. Svo með þetta með Brazzell, ég bara skil ekki af hverju hann fær allt þetta traust. Hann fellur með Gróttu úr Lengjudeildinni eftir að hafa farið nákvæmlega sömu leið og Gústi Gylfa,“ spurði Albert. Það má horfa á alla umræðuna hér fyrir neðan. Klippa: Stúkan: Albert Brynjar með sterka skoðun á brottrekstri Hermanns
Besta deild karla Valur Stúkan Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fleiri fréttir Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Sjá meira