Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar 1. júlí 2026 13:30 Við stöndum frammi fyrir örlagaríkri ákvörðun í lok ágúst. Þá verða greidd atkvæði um hvort við viljum hefja að nýju aðildarviðræður við ESB. Mikilvægt er að átta sig á því að við erum ekki að kjósa um samning við ESB, aðeins hvort taka skuli upp viðræður að nýju. Í umræðunni er þessu tvennu oft blandað saman, jafnvel vísvitandi, til að afvegaleiða umræðuna og hræða fólk frá því að segja já í ágúst. Ég hef lifað í rúm 70 ár og á þeim tíma hefur íslenskt samfélag breyst mikið. Það sem ekki hefur breyst er að við höfum aldrei náð að búa við stöðugt verðlag og lága verðbólgu til lengri tíma. Skýringarnar voru gjarnan þær að atvinnulífið væri einhæft og þjóðfélagið stæði og félli með afkomu í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Nú er ekki hægt að skýla sér á bak við einhæft atvinnulíf til að réttlæta óstöðugleika því í dag eru fjölmargar stoðir undir verðmætasköpuninni. Í hverjum þingkosningum gefa stjórnmálamenn almenningi loforð um að ef þeir verði kosnir þá breytist allt til betri vegar. Hver trúir þessu lengur? Það virðist alveg sama hver heldur um stjórnartaumana, við erum alltaf föst í sömu hjólförunum eins og það sé náttúrulögmál að hér sé viðvarandi efnahagslegur óstöðugleiki. Niðurstaða kosninganna í ágúst skiptir mestu máli fyrir unga fólkið. Höfum í huga að þetta er kannski síðasti möguleiki til að gera raunverulegar breytingar á íslensku þjóðfélagi. Unga fólkið kallar á stöðugleika í efnahagsmálum og meiri samvinnu við lýðræðisþjóðir sem við viljum bera okkur saman við. Unga fólkið sér í gegnum áróðurinn um að allt sé verra í ESB. Það er í samskiptum við fólk sem býr í löndum ESB og veit alveg hvernig ungt fólk í öðrum löndum hefur það. Miðað við nýlegar skoðanakannanir er mesti stuðningurinn við já hjá unga fólkinu en minni hjá þeim sem eldri eru og minnstur í elsta aldursflokknum. Það er ábyrgðarhluti af eldri kynslóðinni að standa í vegi fyrir breytingum því ef við hlustum ekki á unga fólkið mun það ekki hlusta á okkur. Erum við sátt við hvernig samfélag okkar hefur þróast á undanförnum áratugum þar sem þau ríku verða sífellt ríkari og aðgangur að sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar gengur í arf milli kynslóða? Samkeppni er í mýflugumynd og persónur og leikendur úr hruninu eru aftur orðnar áberandi í viðskiptalífinu. Það þýðir ekki að halda því fram að samfélagið hafi þróast á réttan hátt þegar unga fólkið á varla möguleika á að koma sér þaki yfir höfuðið, nema með hjálp foreldra sinna. Tvær fyrirvinnur, jafnvel háskólamenntað fólk, ná varla endum saman um hver mánaðarmót vegna hás verðlags og afborgana af lánum, sem bara hækka og hækka. Samkvæmt nýlegri könnun Gallup eru neytendur á Íslandi svartsýnir á framhaldið. Þeir hafa litla trú á aðstæðum í efnahagsmálum. Hvernig er hægt að stýra efnahagsmálum þegar tvö hagkerfi eru í gangi í einu, krónuhagkerfi fyrir almenning og annað hagkerfi fyrir þá sem gera upp í öðrum gjaldmiðlum en krónunni? Breytinga er þörf og þær verða ekki nema við segjum já í ágúst. Þær breytingar koma ekki innan frá, það hefur ekki tekist á síðustu 70 árum. Með samningi við ESB fáum við mögulega meira aðhald, aðstoð í peningamálum og alvöru gjaldmiðil. Ef ákveðið verður að ganga til samningaviðræðna höfum við alltaf möguleika á að hafna samningi ef okkur finnst hann ekki þjóna hagsmunum þjóðarinnar. Forsætisráðherra hefur reyndar sagt að samningur við ESB verði ekki lagður fyrir þjóðina nema hagsmuna þjóðarinnar verði gætt. Engin ástæða er til að rengja það. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar