Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar 4. júlí 2026 09:01 Tekjustofnar ríkis og sveitarfélaga eru skattar og opinber gjöld af ýmsu tagi. Auk þess að tryggja samfellda þjónustu vítt og breitt um landið hafa þessir tekjustofnar bein áhrif á hegðun fólks, rekstur fyrirtækja, fjárfestingu, húsnæðismarkað og verðlag. Þess vegna skiptir máli að opinber gjaldtaka sé skýr, samræmd og fyrirsjáanleg eins og kostur er. Þar hefur að nokkru skort á undanfarin ár og áratugi. Og á sama tíma og stjórnvöld vísa oft til baráttunnar gegn verðbólgu hafa bæði ríki og sveitarfélög hækkað ýmis gjöld, breytt skattstofnum og aukið álögur með hætti sem heimili og fyrirtæki hafa oft átt erfitt með að sjá fyrir. Skortur á samræmi og fyrirsjáanleika leiðir til aukins kostnaðar á margan hátt. Þegar fyrirtæki vita ekki með nægilegri vissu hvaða skatta, gjöld eða kvaðir þau þurfa að bera eykst áhættan í rekstri og fjárfestingum. Þá halda þau frekar að sér höndum, fresta framkvæmdum eða reikna aukið óvissuálag inn í verðlagningu sína. Ekki má gleyma áhrifum á fjármagnskostnað fyrirtækjanna sjálfra. Að lokum leiðir slíkur kostnaður til hærra verðs til almennings. Eitt lítið dæmi: Leigumarkaðurinn Hækkun skattstofns leigutekna í byrjun þessa árs er lýsandi dæmi um einstaka ákvörðun sem var tekin án nægilegs tillits til stöðunnar í efnahagslífinu. Ríkisstjórnin var ítrekað vöruð við því að breytingin gæti þrýst upp húsaleigu, dregið úr framboði leiguíbúða og aukið verðbólguþrýsting. Leigumarkaðurinn er viðkvæmur og veruleg óvissa einkennir framboð á markaðnum almennt. Margir leigjendur hafa lítið svigrúm og húsnæðiskostnaður vegur þungt í útgjöldum heimila. Þegar skattur er hækkaður á þá sem leigja út húsnæði er ekki sjálfgefið að kostnaðurinn sitji eftir hjá eigandanum, hluti hans getur færst yfir á leigjendur í formi hærri leigu. Slík breyting getur einnig haft áhrif á framboð leigueigna, sem aftur leiðir til hækkandi leiguverðs. Þannig getur ein skattahækkun sem á að afla ríkissjóði tekna endað með því að hækka húsaleigu, þrýsta á vísitölu neysluverðs og lengja tímabil hárra vaxta. Það er nákvæmlega sú tegund ákvörðunar sem hefði átt að fara í gegnum sérstaka verðbólgusíu, eins og Framsókn hefur lagt fram, áður en hún var samþykkt. Gjöld úr öllum áttum Vandinn er þó stærri en ein skattbreyting. Við sjáum þjónustugjöld, leyfisgjöld, innviðagjöld, gjaldskrárhækkanir og aðrar álögur of oft þróast hvert í sína áttina, og ekki alltaf í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Stundum er jafnvel ekki nægilega skýrt fyrir hvað er verið að greiða. Fyrir almenning skiptir minna máli hvaðan reikningurinn kemur. Heimilið horfir á heildarkostnaðinn: fasteignagjöld, þjónustugjöld, gjaldskrár, skatta, leyfi, orkutengdan kostnað, samgöngur og húsnæði. Hvað kostar einfaldlega að lifa? Ef allt hækkar samtímis og með ófyrirsjáanlegum hætti verður niðurstaðan einföld: meiri þrýstingur á verðlag og meiri byrðar á fólki. Framsókn hefur lagt fram skýrari leið Framsókn lagði í vor fram efnahagstillögur sem fólu meðal annars í sér kröfu um samræmdari og fyrirsjáanlegri gjaldtöku hins opinbera, þar á meðal verðbólgusíu, nýtt verklag þar sem stærri ákvarðanir ríkis og sveitarfélaga yrðu metnar út frá áhrifum á verðbólgu, heimili og fyrirtæki. Verkefnið er krefjandi en það eina vitið er að spyrja sig grundvallarspurninga um hvort nálgun okkar í tekjumyndun hins opinbera sé nægilega samræmd og fyrirsjáanleg. Áður en stjórnvöld hækka gjöld eða breyta skattstofnum þarf t.a.m. eftirfarandi að liggja fyrir: Hafa áhrif gjaldtökunnar verið metin nægilega vel? Hefur ákvörðunin áhrif á vísitölu neysluverðs? Dregur hún úr framboði? Eykur hún rekstrarkostnað fyrirtækja? Og samræmist hún markmiðum um lægri verðbólgu og lægri vexti? Eru aðrar leiðir færar? Hugrekki til að endurhugsa kerfið Við þurfum hugrekki til að endurhugsa opinbera gjaldtöku. Hún á að vera einfaldari, gagnsærri og betur samræmd milli ríkis og sveitarfélaga. Gjöld eiga að standa undir veittri þjónustu, skattar eiga að vera kallaðir réttu nafni, og allar meiri háttar ákvarðanir eiga að standast verðbólgupróf. Markmiðið er ekki að veikja tekjugrunn hins opinbera, heldur tryggja réttlátari, skýrari og ábyrgari gjaldtöku sem styður við stöðugleika í stað þess að vinna gegn honum. Heimili og fyrirtæki þurfa aukinn fyrirsjáanleika. Hagkerfið þarf lægri verðbólgu. Og hið opinbera þarf að ganga á undan með góðu fordæmi. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar